Sérstakur saksóknari hyggst ljúka rannsókn hrunmála á þessu ári

10016453455_dc0239b163_z.jpg
Auglýsing

Stefnt er á að ljúka ­rann­sókn allra hrun­mála fyrir lok þessa árs og gert er ráð fyrir því að máls­með­ferð þess­ara mála ­fyrir hér­aðs­dómi verði komin langt á veg í árs­lok. Þetta segir Ólafur Þór Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari.

„Mál í rann­sókn í árs­lok (2014) voru 24 tals­ins. Það er tölu­vert mikið af þessum málum sem eru á þeim stað að það vantar mjög lítið upp á til að klára þau,“ segir Ólaf­ur. Stefnt var að því að klára rann­sókn allra mála um síð­ustu ára­mót en það mark­mið tókst ekki. Það sem eftir stendur segir Ólafur að eigi að klár­ast á þessu ári. „Það er yfir­lýst mark­mið hér að ná að gera það. Svo eru alltaf ein­hverjir óvissu­þætt­ir,“ segir hann og til­tekur til dæmis ef þarf að fara með rétt­ar­beiðnir til útlanda þá getur það tekið langan tíma.

Hér­aðs­sak­sókn­ari tekur við öllu



Jafn­vel þótt ein­hver mál standi eftir hjá emb­ætt­inu í árs­lok 2015 munu þau verk­efni fær­ast yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins sem til stendur að stofna, segir Ólafur Þór. Það emb­ætti á að taka yfir rann­sókn, ákæru­með­ferð og sak­sókn í efna­hags­brota­mál­um, sem og fleiri verk­efni, sam­kvæmt frum­varpi inn­an­rík­is­ráð­herra um breyt­ingu á lögum um með­ferð saka­mála og lög­reglu­lög­um, sem er nú í með­förum þings­ins.

Hér­aðs­sak­sókn­ara­emb­ættið mun fá verk­efni frá rík­is­sak­sókn­ara, sér­stökum sak­sókn­ara, rík­is­lög­reglu­stjóra og öðrum lög­reglu­emb­ætt­um. Gert er ráð fyrir því að hvort sem mál verði enn í rann­sókn, í ákæru­með­ferð eða fyrir dómi, þá verði þau færð til hér­aðs­sak­sókn­ara ef og þegar lögin taka gildi.

Auglýsing

Fjórtán hrun­mál bíða ákvörð­unar um sak­sókn



Í svari emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í jan­úar síð­ast­liðnum eru til við­bótar við þessi 24 mál sem minnst var á hér að framan fjórtán mál fullrann­sökuð og bíða þess að ákvörðun verði tekin um hvort sak­sótt verður í þeim eða ekki.

200 af þeim málum sem hafa komið inn á borð emb­ætt­is­ins frá stofnun þess eru svokölluð hrun­mál. 139 þess­ara mála hefur verið vísað frá, hætt hefur verið við rann­sókn eða þau sam­einuð öðrum mál­um.

Heild­ar­fjöldi mála sem emb­ættið hefur fengið á sitt borð er mun meiri, eða 667 mál. Ólafur segir það oft fá litla athygli að á und­an­förnum árum hafi fjölgun verið mikil í öðrum efna­hags­brot­um, en en efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra var sam­einuð emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara árið 2011.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None