"Sígaunastjórinn" dæmdur í fangelsi og gert að yfirgefa Danmörku

gimi.jpg
Auglýsing

Gimi Levakovic, höf­uð­paur einnar alræmd­ustu glæpa­fjöl­skyldu Dan­merk­ur, var í gær dæmdur í fimmtán mán­aða fang­elsi og gert að yfir­gefa landið þegar afplánun lýk­ur. Levakovic, sem oft er kall­aður "Sígauna­stjór­inn" (e. Gypsy boss og d. Sigøjner­bossen)  hlaut dóm­inn í hér­aðs­dómi í Næst­ved fyrir líf­láts­hót­anir og vopna­burð. Hann varð einn umtal­að­asti maður Dan­merkur í jan­úar síð­ast­liðnum eftir að danska sjón­varps­stöðin TV2 sýndi tvo sjón­varps­þætti um Levakovic fjöl­skyld­una. Þætt­irnir voru gerðir með sam­þykki fjöl­skyld­unnar og þar eru löng við­töl við Gimi Levakovic og Jura bróð­ur­son hans sem nú afplánar 5 ára dóm og verður vísað úr landi.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um fjöl­skyld­una í frétta­skýr­ingu í jan­úar síð­ast­liðn­um.

Levakovic var væg­ast sagt ósáttur með dóm­inn. Á Face­book-­síðu um hann eru birt harð­orð skila­boð eftir að dóm­ur­inn lá fyr­ir. Skila­boð­in ­segja að hann ætli að taka alla fríu pen­ing­anna sem hann hafi kom­ist yfir með sér og bið­ur­ D­ani að muna að hann muni snúa aft­ur. Og í þetta sinn ætli hann sér að taka með alla Rúm­en­íu. Með skila­boð­unum er birt ­mynd með áletr­un­inni „Fuck the system“. Vert er að veita því athygli að á Face­book er Gimi kall­aður Gimi ´the Boss´ Levakovic og hann titl­aður sem stjórn­mála­mann.

Auglýsing








Fuck jer Dan­mark og jeres dansker racist Pia Kjers­gard. Jeg all­er­ede tager med mig jeres gratis penge, fuck jer. Men HUSK Dan­mark, jeg kommer til­bage, og ikke kun mig, men hele rumænien !! Tak og vel­bekomme.

Posted by Gimi 'the Boss' Levakovic on Thurs­day, Aug­ust 6, 2015







Ætl­aði alltaf að vera gangster



Í þátt­unum um fjöl­skyld­una sem sýndir voru í upp­hafi árs seg­ist Ju­ra, sem er 26 ára, alltaf hafa ætlað sér að verða gangster, það verði hver að finna sína fjöl í líf­inu og þetta sé sín fjöl. Hann lýsti mik­illi óánægju með að verða sendur með rútu til Króa­tíu þegar afplánun lýk­ur, slíkt væri við­bót­ar­refs­ing. Hann sagði jafn­framt að hann hefði verið átta ára þegar hann fór að fara með föður sínum í ráns­ferð­ir, til að læra aðferð­irn­ar, og hann hefði sjálfur byrjað að stela þegar hann var 13 ára.

Í umfjöllun Kjarn­ans um sjón­varps­þætt­ina í jan­úar kom meðal ann­ars fram þeg­ar ætt­ar­höf­uðið Gimi Levakovic var spurður hvernig á því stæði að hann hefði aldrei unnið neitt þá svar­aði hann því til að hann áliti að til þess að fá vinnu þyrfti menntun og hana hefði hann ekki. „Hef­urðu aldrei íhugað að afla þér mennt­un­ar?“ spurði sjón­varps­mað­ur­inn. „Nei, aldrei“ var svar­ið. Gimi á tvö ung börn á skóla­aldri, hvor­ugt þeirra gengur þó í skóla, hann seg­ist að sjálf­sögðu vilja að börnin fái menntun en þetta sé nú svona. Ein tengda­dóttir bróður hans er 16 ára og á eitt barn, hún hefur ekki verið í skóla í mörg ár. Gimi sagði að ef ung­lings­stúlka væri í skóla heyrði hún talað um kyn­líf og fjöl­skyldan væri jafn­framt viss um að hún ætti kærasta í skól­an­um, slíkt gengi ekki. Þegar hann var minntur á skóla­skyld­una sagði hann; „Við sígaunar höfum okkar siði og venjur og Danir verða bara að virða það.“ Hann lagði líka mikla áherslu á gildi fjöl­skyld­unnar sem stæði saman í blíðu og stríðu, „sígaunar eru frið­sam­ir“ sagði hann. Sleppti því hins vegar alveg að minn­ast á að hann barði fyrr­ver­andi konu sína til óbóta og keyrði síð­ar, eftir að þau voru skil­in, á hana þar sem hún var á gangi og stórslas­aði hana.

Hægt er að horfa á þætt­ina í heild sinni hér að neð­an:

Fyrri hluti:

https://www.youtu­be.com/watch?v=8Al8bwpi6gc

Seinni hluti:

https://www.youtu­be.com/watch?v=BPuQZGX­byyY



Að gefnu til­efni: Talað er um sígauna en ekki Róma­fólk í þess­ari grein. Það er gert vegna þess að í við­tölum við með­limi fjöl­skyld­unnar í Dan­mörku tala þeir um sjálfa sig sem sígauna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None