Sigmundur Davíð boðar stórar millifærslur til heimila landsins

Íslendingar ættu að fá auðlindagjald greitt út beint í sinn vasa á Fullveldisdaginn á hverju ári, samkvæmt nýrri kosningastefnu Miðflokksins. Sömuleiðis inniheldur stefnan beinar millifærslur til heimila ef afgangur er af fjárlögum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

Mið­flokk­ur­inn segir að milli­færa ætti helm­ing af afgangi rík­is­sjóðs ár hvert beint á hvern Íslend­ing á full­veld­is­dag­inn, 1. des­em­ber. Sömu­leiðis ætti hver full­orð­inn Íslend­ingur að fá greitt auð­linda­gjald frá rík­is­sjóði sama dag.

Þetta kom fram í kynn­ingu Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, for­manns flokks­ins, á kosn­inga­stefnu sinni sem fór fram í Hörpu í dag, en henni var streymt á vef Vísis. Í henni voru tíu stefnu­mál flokks­ins kynnt, en þau fólu í sér ýmsar nið­ur­greiðslur og milli­færslur til íslenskra heim­ila og fyr­ir­tækja.

Fyrsta stefnu­mál flokks­ins inni­hélt milli­færslu til heim­ila á hluta af afgangi rík­is­sjóðs. Sam­kvæmt Sig­mundi munu slíkar greiðslur skapa hvata fyrir stjórn­mála­menn til að fara spar­lega með skattfé og auka tekjur rík­is­ins eins og kostur er.

Auglýsing

Sam­kvæmt öðru stefnu­máli flokks­ins mun hver full­orð­inn Íslend­ingur líka fá greitt það auð­linda­gjald sem rík­is­sjóður hefur fengið frá fyr­ir­tækjum lands­ins. Þetta gjald ætti að vera tengt við arð­bæra nýt­ingu auð­lind­anna, en á fyrsta ári muni milli­færslan nema 100 þús­und krónur á núver­andi verð­lagi.

Sig­mundur segir við hæfi að þessar greiðslur muni báðar eiga sér stað á full­veld­is­deg­in­um, 1. des­em­ber.

Ýmsar aðrar fyr­ir­hug­aðar nið­ur­greiðslur mátti finna í hinum átta til­lögum flokks­ins. Þar á meðal var lagt til að hlutafé í Íslands­banka yrði dreift með jöfnum hætti til íslenskra rík­is­borg­ara. Þá var einnig lagt til að ríkið myndi veita mót­fram­lag sem gæfi öllum Íslend­ingum tæki­færi til að eign­ast eigið hús­næði og að ein­stak­lingum yrði leyft að ráð­stafa 3,5 pró­sentu­stigum af líf­eyr­is­sparn­aði sínum í hús­næð­is­kaup.

Sig­mundur minnt­ist einnig á orku­kostn­að, en sam­kvæmt honum ætti slíkur kostn­aður að vera sá sami fyrir alla íbúa lands­ins, óháð búsetu. Sam­kvæmt honum er ekki sam­ræmi í því að líta á orku­auð­lind­ina sem sam­eign þjóð­ar­innar og rukka svo mis­mikið fyrir hana.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent