Sigmundur Davíð ætlar ekki að ræða um afnám verðtryggingar við Alþingi

h_51921041-11.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra ætlar ekki að ræða við þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar um afnám verð­trygg­ing­ar­inn­ar, eins og þeir hafa ítrekað óskað eft­ir. Þetta kom fram í máli Ein­ars K. Guð­finns­son­ar, for­seta Alþing­is, í störfum þings­ins í dag.

Sam­kvæmt Ein­ari hafa þær upp­lýs­ingar borist frá Sig­mundi Davíð að hann líti svo á að afnám verð­trygg­ing­ar­innar sé á borði Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra.

Þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa und­an­farið minnst mjög reglu­lega á það í störfum þings­ins og undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta að Sig­ríður Ingi­björg Inga­dótt­ir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, óskaði eftir því í febr­úar á síð­asta þingi að for­sæt­is­ráð­herra ræddi við þingið um afnám verð­trygg­ing­ar­inn­ar, sem var eitt stærsta kosn­inga­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins í síð­ustu kosn­ing­um. Hann varð ekki við því á síð­asta þingi og beiðnin um sér­staka umræðu var því end­ur­nýjuð þegar þing kom saman að nýju í haust.

Auglýsing

Í dag komu þing­menn ­Sam­fylk­ing­ar­innar í ræðu­stól og ræddu um þetta og einnig um það að þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa und­an­farið komið fram í þing­inu og rætt um þetta kosn­inga­lof­orð flokks­ins. For­seti þings­ins svar­aði spurn­ingum þing­manna og spurn­ingum og sagði að Sig­mundur hygð­ist ekki verða við beiðni um sér­staka umræðu vegna þess að hann telji að málið sé á for­ræði Bjarna Bene­dikts­son­ar.

Þessi tíð­indi vöktu mikil við­brögð stjórn­ar­and­stöð­unn­ar, sem gagn­rýndi þetta mjög, enda

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ræddi mikið um afnám verð­trygg­ing­ar­innar í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga. Í pistli fyrir kosn­ing­arn­ar, sem nefnd­ist Fram­sókn­ar­stjórn eða verð­trygg­ing­ar­stjórn, sagði Sig­mundur Davíð meðal ann­ars að staðan væri ekki flókin og ljóst væri að annað hvort yrði rík­is­stjórn mynduð um skulda­leið­rétt­ingu, afnám verð­trygg­ingar og heil­brigð­ara fjár­mála­kerfi, eða rík­is­stjórn þeirra sem væru gegn þessum mál­um. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur hins vegar sagt að það standi alls ekki til að afnema verð­trygg­ingu. Þó væri unnið að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og mögu­legt er að það verði lagt fram á haust­þing­i. Þær breyt­ingar áttu að þrengja að 40 ára jafn­greiðslu­lánum og fara með þau niður í 25 ár. Það frum­varp er ekki á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar fyrir kom­andi vet­ur.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None