Sigmundur Davíð: Bankakerfi í höftum réttlætir ekki fjórfalda bónusa

10054150805_0c00abdeec_z.jpg
Auglýsing

„Tug­pró­senta hækkun stjórn­ar­launa í fyr­ir­tækjum eru kol­röng og óábyrg skila­boð inn í sam­fé­lagið á þessum tíma. Við þurfum sam­eig­in­lega að byggja upp þjóð­fé­lag festu og stöð­ug­leika og slíkar hækk­anir hjálpa ekki til við það,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra, á árs­fundi Sam­taka atvinnu­lífs­ins í dag. Ástandið á vinnu­mark­aðnum var aðal­um­fjöll­un­ar­efni for­sæt­is­ráð­herra í ræðu sinni.

Auk hækk­unar á stjórn­ar­launum gagn­rýndi for­sæt­is­ráð­herra umræðu um hækkun á banka­bón­us­um. „Óskir um fjór­falda hækkun banka­bónusa er af sama meiði. Banka­kerfi í höft­um, varið að mestu fyrir erlendri sam­keppni, býr ekki til slík verð­mæti að það rétt­læti að launa­kerfi þess séu á skjön við aðra mark­aði og rétt­læt­is­kennd almenn­ings.“

Sig­mundur sagði stöðu efna­hags­mála á Íslandi góða og mögu­leikar til áfram­hald­andi kaup­mátt­ar­aukn­ingar mikla. Hann sagði jafn­framt að launa­þróun hefði verið „merki­lega“ lík á milli stétta und­an­farin ár. „Helstu breyt­ing­arnar eru þær að lægri laun hafa hækkað meira en með­al­laun­in, laun verka­fólks hafa hækkað meira en stjórn­enda og laun kvenna hafa hækkað meira en laun karla. Fá lönd eru nú með meiri tekju­jöfnuð en Ísland.“

Auglýsing

Sig­mundur sagði ólgu á vinnu­mark­aði nú stafa af því að „loks­ins sé eitt­hvað til skipt­anna og allir vilji fá sinn rétt­mæta hlut af nýrri verð­mæta­sköp­un.“ Það sé lang­tíma­verk­efni að vinna að auk­inni kaup­mátt­ar­aukn­ingu með auk­inni fram­leiðslu og fram­leiðni. „Rík­is­stjórn getur stutt við slíka þró­un, en fyrst og fremst er það í valdi aðila vinnu­mark­að­ar­ins að ná því fram. Það ætti flestum að vera ljóst að á þennan hátt, og þennan hátt ein­an, er hægt að bæta lífs­kjör var­an­lega.“

Rík­is­stjórnin væri reiðu­búin að taka þátt í skyn­sam­legum aðgerðum sem gætu leitt til kjara­samn­inga sem ekki ógni stöð­ug­leika, en hún muni „leggj­ast á árarnar með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins“ um að ekki verði gerðir verð­bólgu­hvetj­andi kjara­samn­ing­ar. „Verð­bólgu­samn­ingar leiða til minni kjara­bóta fyrir laun­þega, meiri og síend­ur­tek­inna átaka og end­ur­tek­inna leið­rétt­inga á vinnu­mark­aði, hækk­unar verð­tryggðra skulda og geng­is­lækk­un­ar. Allt bitnar þetta á sam­fé­lag­inu öllu en verst á fólki með lægri- og milli­tekj­ur. Við yrðum mörg ár að vinna okkur út úr slíkum vanda og því megum við ekki kalla hann yfir okk­ur.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None