Sigmundur Davíð og Medvedev ræddu saman - Málið í „algjörum forgangi“

9951275365_06d0a92bd6_z.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, átti í dag síma­fund með Dmi­try Med­vedev, for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands. Ráð­herr­arnir ræddu þá alvar­legu stöðu sem upp er komin í sam­skiptum ríkj­anna, að því er segir í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Eins og kunn­ugt er útvíkk­uðu Rússar inn­flutn­ings­bann sitt og nær það nú til Íslands. Þetta bitnar á við­skiptum land­anna en Rúss­lands­mark­aður er einn helsti mark­aður íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja þegar kemur að upp­sjáv­ar­teg­und­um, þar á meðal mak­ríl.

„For­sæt­is­ráð­herra Íslands gerði for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands grein fyrir því að áhrif við­skipta­þving­ana hér á landi væru hlut­falls­lega meiri en hjá flestum öðrum ríkjum sem undir þær falla og virð­ast bitna mest á  út­flutn­ingi á sjáv­ar­af­urð­u­m,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

,,Við áttum gott sam­tal þar sem við ræddum aðdrag­anda þeirrar stöðu sem komin er upp og urðum sam­mála um að æski­legt væri að emb­ætt­is­menn land­anna héldu áfram sam­skipt­um. Það eru gríð­ar­legir hags­munir undir og rík­is­stjórnin setur þetta mál í algeran for­gang“, sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, að afloknum fund­in­um.

Sam­talið við for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands átti sér stað í kjöl­far  þess að rík­is­stjórnin fór yfir mögu­leg áhrif við­skipta­þving­ana á fundi sínum fyrr í dag. „Ís­land og Rúss­land eiga langa og jákvæða við­skipta­sögu að baki og það hefur verið vilji hér á landi til að byggja áfram á því sterka við­skipta­sam­bandi. Íslensk stjórn­völd hafa und­an­farnar vikur átt mikil sam­skipti við rúss­nesk stjórn­völd eftir ýmsum leiðum til að reyna að koma í veg fyrir að mót­að­gerðir Rússa bitn­uðu óeðli­lega mikið á Íslandi. Stjórn­völd munu halda þeim sam­skiptum áfram með það að mark­miði að draga úr nei­kvæðum áhrifum á  mik­il­væg störf í sjáv­ar­út­vegi og grein­ina í heild,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None