Sigmundur Davíð: Þjóðarstoltið mikilvægt í fjárhagsvandræðum

18417150919_8ced912150_k-1.jpg
Auglýsing

Þjóð­arstolt er mik­il­vægt þegar kemur að því að takast á við ýmiss konar vanda­mál, þar með talin fjár­hags­leg vanda­mál eins og Ices­a­ve. Þetta sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra í við­tali í þætt­inum Business Daily á BBC World Service í morg­un. For­sæt­is­ráð­herr­ann var spurður um lík­indi með krepp­unni á Íslandi og í Grikk­landi í þætt­in­um, þar sem því var varp­að fram að margir teldu að Íslend­ingar hefðu við­haldið þjóð­arstolt­inu en Grikkir ekki.

Sig­mundur sagði þjóð­arstoltið mik­il­vægt. „Vegna þess að ef þú finnur til stolts gagn­vart sam­fé­lag­inu eða sög­unni þá hjálpar það fólki að standa saman við að takast á við erfið mál og jafn­vel standa frammi fyrir því sem kalla mætti hót­an­ir,“ sagði hann. Jafn­vel mætti tala um ein­elti gagn­vart Íslandi í ein­hverjum til­vikum þegar kæmi að Ices­a­ve-­mál­um.

Sig­mundur sagði að það hefði verið spurn­ing um þjóð­arstolt Íslend­inga að neita að borga fyrir Ices­a­ve. „Ég held að allir hafi verið sam­mála um að það ætti að borga inn­stæðu­eig­endum í Bret­landi og Hollandi til baka en að það ætti sá aðili sem bar ábyrgð, þrotabú bank­ans, að gera, eins og nú hefur ger­st,“ sagði Sig­mund­ur.

Auglýsing

„Það var alltaf ljóst að slita­búið hefði nægt fé til að borga inn­stæðu­eig­endum til baka vegna neyð­ar­lag­anna, sem höfðu í för með sér að inn­stæðu­eig­endur fengu for­gang. Það var gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir Breta og Hol­lend­inga,“ hélt Sig­mundur fram.

Ekki alltaf verið ljóst að til væri fé



Það hefur hins vegar ekki alltaf verið ljóst að nægar end­ur­heimtur yrðu í þrota­búi gamla Lands­bank­ans til að hægt væri að greiða for­gangs­kröfur til baka, þótt það sé nú orðið ljóst og hafi lengi verið talið lík­legt. Sig­mundur Davíð sagði sjálfur í grein eftir að EFTA-­dóm­stóll­inn hafði kveðið upp sinn dóm, í jan­úar 2013, að „nú virð­ist loks öruggt að þrotabú Lands­bank­ans muni geta greitt allar for­gangs­kröfur í búið, þar á meðal allar kröfur vegna Ices­a­ve, einnig kröfur breskra sveit­ar­fé­laga og ann­arra lög­að­ila.“ Árið 2011 sagði hann í grein í Morg­un­blað­inu að sam­kvæmt samn­ingum sem þá voru á borð­inu ættu Íslend­ingar einir að bera þá miklu áhættu sem væri fyrir hendi. „Eignir þrota­bús­ins eru enn að mestu leyti áhættu­fjár­fest­ing­ar. Verði fram­hald á fjár­málakrís­unni í Evr­ópu mun verð­mæti þeirra falla mik­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None