Sigmundur Davíð: Verkalýðshreyfingin þarf að geta tekist á við velgengni

10054150805_0c00abdeec_z.jpg
Auglýsing

"Það er mik­il­vægt að kunna að takast á við vel­gengni jafnt sem mót­læti. Við skulum halda áfram á leið auk­ins kaup­máttar með sam­eig­in­legu átaki því það kemur heim­ilum og fyr­ir­tækjum best. Félags­leg vel­ferð og öfl­ugt atvinnu­líf hald­ast í hend­ur. Kveðum verð­bólgu­draug­inn niður og stöndum saman að því að auka kaup­mátt enn meira." Þetta er meðal þess sem fram kemur í svar­grein Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra við grein Sig­urðar Bessa­son­ar, for­manns Efl­ing­ar, sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag. Fyr­ir­sögn grein­ar­innar er "Að takast á við vel­gengn­i".

Hver eiga laun þeirra lægst laun­uð­ustu að vera?



Sig­urður rit­aði for­sæt­is­ráð­herra opið bréf í Morg­un­blað­inu í gær þar sem hann sagði það hafa komið á óvart þegar Sig­mundur Davíð hafn­aði því á nýaf­stöðnu Við­skipta­þingi að þeir samn­ingar sem ríkið hefur gert við tekju­hærri hópa, lækna og kenn­ara, geti verið við­mið fyrir kröfu­gerð ann­arra. Sig­urður spurði hvaða launa­tölu for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði þá í huga fyrir lægst laun­að­asta fólk lands­ins, meðal ann­ars skjól­stæð­inga sína? "Þá væri eðli­legt að fá mat ráð­herra á því hvort það sé rangt að tekjur lækna hækki á bil­inu 200 til 400 þús­undir króna í kjöl­far samn­ing­anna," sagði Sig­urður enn­frem­ur.

Í grein sinni í dag segir Sig­mundur Davíð að því hafi verið haldið fram að kjara­samn­ingar rík­is­ins hafi raskað jafn­vægi á vinnu­mark­aði og hækk­anir á launum rík­is­starfs­manna hafi verið úr takti við aðra launa­þró­un. Það segir hann að sé rangt, enda hafi "ríkið samið við tæp 90% starfs­manna sinna með líkum hætti og almenni vinnu­mark­að­ur­inn hafði áður gert. Samn­ingar við lækna og fram­halds­skóla­kenn­ara, sem sam­tals eru um 10% starfs­manna rík­is­ins og 1,5% af vinnu­mark­aði í heild, skera sig þó úr. Í þeim samn­ingum voru gerðar veru­legar breyt­ingar á vinnu­fyr­ir­komu­lagi og launa­upp­bygg­ingu stétt­anna. Samn­ing­arnir eru einnig til mun lengri tíma, eða tæpra þriggja ára. Þeir geta því ekki gefið for­dæmi fyrir þá samn­inga sem framundan eru á vinnu­mark­að­i."

Kaup­máttur vegna hóf­samra launa­hækk­anna, lægri skatta og "Leið­rétt­ing­ar­inn­ar"



Sig­mundur bendir síðan á að kaup­máttur launa hafi auk­ist um 5,3 pró­sent á síð­ast­liðnu ári sem verði að telj­ast veru­lega góður árang­ur. Hann segir marga eiga þátt í þeim árangri og að hann skýrist meðal ann­ars af "ábyrgum kjara­samn­ingum á síð­asta ári" þegar samið var um hóf­samar launa­hækk­anir sem skil­uðu sér nær að öllu leyti í auknum kaup­mætti. "Lægri skatta­álögur á heim­ili og leið­rétt­ing fast­eigna­skulda hafa svo enn frekar aukið kaup­mátt heim­il­anna. Staðan er því betri en oft­ast áður og sem betur fer er eitt­hvað til skipt­anna. Nú ríður hins vegar á að ótt­inn við að missa af hlut­deild í afrakstr­inum verði ekki til þess að minna verði til skipt­anna fyrir alla."

For­sæt­is­ráð­herr­ann segir að Sig­urður eigi að vita hversu mik­il­vægur stöðu­leiki sé fyrir íslenska laun­þega. "Það er mik­il­vægt að kunna að takast á við vel­gengni jafnt sem mót­læti. Við skulum halda áfram á leið auk­ins kaup­máttar með sam­eig­in­legu átaki því það kemur heim­ilum og fyr­ir­tækjum best. Félags­leg vel­ferð og öfl­ugt atvinnu­líf hald­ast í hend­ur. Kveðum verð­bólgu­draug­inn niður og stöndum saman að því að auka kaup­mátt enn meira," segir Sig­mundur Davíð að lok­um.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None