Sigmundur segist ekki hafa fullyrt um lögbrot í máli Víglundar

sigmundurda.png
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist aldrei hafa full­yrt að lög hafi verið brotin í sam­hengi við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins, heldur hafi hann full­yrt að menn hafi „tekið rangar og skað­legar póli­tískar ákvarð­an­ir“ og kastað miklum verð­mætum á glæ þegar bank­arnir voru end­ur­reist­ir. Hann sagði póli­tíska and­stæð­inga hafa reynt að leiða umræð­una að meintum lög­brotum vegna þess að þeir treystu sér ekki í umræðu um það sem málið snérist um, þessar röngu pólítísku ákvarð­an­ir.

Þetta sagði Sig­mundur Davíð í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Róbert Mars­hall, for­maður Bjartar fram­tíð­ar, spurðu hann báðir um skýrslu Brynjars Níels­sonar á þing­inu í dag. Skýrslan fjallar um ásak­anir Víg­lundar Þor­steins­sonar um að ráð­herr­ar, emb­ætt­is­menn og banka­menn hafi gerst sekir um stór­felld og marg­vís­leg lög­brot þegar lán ein­stak­linga og fyr­ir­tækja voru flutt úr gömlu bönk­unum í þá nýju. Hann tal­aði um svik og blekk­ingar í þessu sam­bandi.

Auglýsing

Brynjar Níels­son skil­aði skýrslu sinni vegna máls­ins til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í gær. Hann segir úti­lokað að taka undir ásak­anir Víg­lundar um svik og blekk­ing­ar, og að hann finni engin merki um lög­brot. Eðli­legt sé þó að lagaum­gjörðin á Íslandi verði skoðuð sem og ferlið við end­ur­reisn bank­anna.

Þegar ásak­an­irnar komu fram síð­ast í jan­úar sagði Sig­mundur Davíð að ásak­anir Víg­lundar væru „við fyrstu sýn býsna slá­and­i.“ Jafn­framt sagði hann að „þessi gögn virð­ast stað­festa það sem okkur grun­aði áður og varð að mjög heitu póli­tísku máli á sínum tíma.“

Hann sagði aug­ljóst að gögn Víg­lundar kall­aði á frek­ari athugun og að þau gefi það sterk­lega til kynna að menn hafi gengið mjög langt í að snúa við nið­ur­stöðu sem komin var, sem hefði verið miklu hag­stæð­ari almenn­ingi, í þeim eina til­gangi að þókn­ast kröfu­höfum bank­anna. ­Sig­mundur sagði einnig að menn hafi fundið leiðir til þess að fara fram­hjá neyð­ar­lög­unum, og boð­aði rann­sókn á mál­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None