Sigmundur vonar að tillaga um viðbyggingu við Alþingi og fleiri byggingar nái í gegn

gu--jon.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra von­ast til þess að Alþingi afgreiði til­lögu hans frá því í apríl um við­bygg­ingu við Alþing­is­hús­ið, auk þess að byggt verði hús íslenskra fræða við Háskóla Íslands og byggt verði á Val­hall­ar­reitnum á Þing­völl­um. Þetta kom fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­manns Vinstri grænna, á þingi í dag.

Sig­mundur Davíð lagði fram drög að til­lög­unni á rík­is­stjórn­ar­fundi í vor og þar var hún sam­þykkt. Til­lagan snýr að því hvernig skuli minn­ast ald­ar­af­mælis sjálf­stæðis og full­veldis Íslands. Málið vakti mikla athygli, ekki síst vegna þess að til­lagan gerði ráð fyrir því að tæp­lega hund­rað ára hönnun Guð­jóns Sam­ú­els­sonar yrði notuð til grund­vallar við­bygg­ingu við Alþing­is­hús­ið.

Katrín hvatti for­sæt­is­ráð­herra til þess að beita sér fyrir því að ráð­ist yrði í bygg­ingu allra þess­ara þriggja verk­efna. Hún minnt­ist sér­stak­lega á hús íslenskra fræða. Hún spurði ráð­herra hvar málið stæði og hvort þingið mætti eiga von á því að tekin verði ákvörðun um að ráð­ast í þessi mál. Hún sagð­ist hafa heyrt að málið hefði strandað í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en Sig­mundur svar­aði engu um það.

Auglýsing

Sig­mundur sagð­ist „svo sann­ar­lega“ vona að sú yrði raunin að ákvörðun yrði tekin um þessi mál. Hann sagði hins veg­ar, eftir að hafa verið spurður aftur um mál­ið, að hann héldi að tafir á mál­inu stöf­uðu af því að „menn vilji skoða hlut­ina vel“ og fara sem hag­kvæm­asta leið. Til­lögur um fjár­út­lát sem þessi þyrfti alltaf að skoða vel, ekki síst þegar þurft hefði að spara í rík­is­rekstr­inum und­an­farin ár.

„Von­andi komumst við að nið­ur­stöðu hvað þetta varðar í tæka tíð til að geta haldið upp á hund­rað ára afmæli full­veld­is­ins með þessum hætt­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None