Sigríður Björk: Hugsaði aldrei um að hætta og fátt eftir í lekamálinu

sbg.jpg
Auglýsing

Sig­ríður Björk Guð­jóns­dótt­ir, lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, hugs­aði aldrei um það að hætta þegar umræða um þátt hennar í leka­mál­inu svo­kall­aða stóð sem hæst. Hún segir að búið sé að fara í gegnum málið af ýmsum yfir­völdum og meta aðkomu hennar að því. Þá hafi Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra lýst yfir trausti á hana. „Þannig að það er kannski fátt sem eftir á að segja í þessu máli.“ Þetta kemur fram í við­tali við Sig­ríði Björk í Frétta­blað­inu í dag.

Hún seg­ist hafa hætt að taka þátt í umræð­unni um leka­málið á ein­hverjum tíma­punkti til að hafa vinnu­frið.„­Fók­us­inn minn fór þang­að, inn í mín verk­efni og ég lét eft­ir­lits­stofn­unum eftir að sinna sínu hlut­verki, sem þær gerðu. Ég gat lítið annað gert.“

Sig­ríður Björk ­seg­ist aðspurð að sér hafi ekki þótt fjöl­miðlaum­fjöllun um sig ósann­gjörn. Hún hafi skiln­ing á því að fjöl­miðla­fólk og aðrir voru að sinna sinni vinnu. Síð­ast­liðið ár hafi hins vegar verið mjög lær­dóms­ríkt. Hún verði að segja það.

Auglýsing

Per­sónu­vernd sagði Sig­ríði hafa brotið gegn lögum



Í lok febr­úar síð­ast­lið­inn birti Per­sónu­vernd úrskurð þar sem stofn­unin komst að þeirri nið­ur­stöðu að Sig­ríður Björk hefði brotið lög um  ­per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga með því að skrá ekki í mála­skrá emb­ætt­is­ins þegar hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos við upp­haf leka­máls­ins svo­kall­aða.

Þar að auki hafði Sig­ríður Björk ekki heim­ild til að senda grein­ar­gerð­ina en henni bar, sem ábyrgð­ar­að­ili á vinnslu per­sónu­upp­lýs­ing­anna, að kanna á hvaða laga­grund­velli beiðni Gísla Freys um grein­ar­gerð­ina var sett fram. Þá er sömu­leiðis látið að því liggja í úrskurði Per­sónu­verndar að Sig­ríður Björk hafi brotið gegn lög­reglu­lögum þar sem kveðið er á um þagn­ar­skyldu lög­reglu, svo við­kvæmar hafi per­sónu­upp­lýs­ing­arnar um Tony Omos ver­ið.

Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra greindi frá því nokkrum dögum síðar að ráðu­neyti hennar myndi ekki áminna Sig­ríði Björk vegna úrskurðar Per­sónu­vernd­ar. Ólöf sagði enn fremur að málið myndi ekki hafa nein frek­ari eft­ir­mál. Hún hafi metið það svo að Sig­ríður Björk hefði afhent umrædd gögn í góðri trú.

Sig­ríður Björk segir í við­tal­inu við Frétta­blaðið í dag að hún hafi gefið ráðu­neyti sínu upp­lýs­ingar sól­ar­hring eftir að leka­málið kom upp.

Segir lög­reglu hafa skoðað sam­skipti sín við Gísla Frey



Sú spurn­ing sem helst hefur verið ósvöruð í þessum anga leka­máls­ins er af hverju Sig­ríður Björk lét ekki rann­sak­endur leka­máls­ins vita að Gísli Freyr hefði verið í sam­skiptum við hana þessa sömu daga og lek­inn á minn­is­blaði um Tony Omos og fleiri átti sér stað til að óska eftir upp­lýs­ingum um sama fólk. Sig­ríður Björk svarar þeirri spurn­ingu í við­tali við Morg­un­blaðið í mars svona: „Því er til að svara að sam­skipti mín við aðstoð­ar­mann­inn fóru fram eftir að hann hafði lekið upp­lýs­ingum til fjöl­miðla. Jafn­framt að öll sam­skipti aðstoð­ar­manna og tölvu­póst­send­ingar voru skoðuð af lög­regl­unni og allar upp­lýs­ingar um mín sam­skipti lágu þar fyr­ir.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None