Sigurjón og Yngvi Örn dæmdir til að greiða gamla Landsbankanum 238 milljónir króna

sigurjonar.jpg
Auglýsing

Sig­ur­jón Þ. Árna­son, fyrrum banka­stjóri Lands­bank­ans, og Yngvi Örn Krist­ins­son, fyrrum for­stöðu­maður verð­bréfa­sviðs bank­ans, voru í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag dæmdir til að greiða slita­stjórn gamla Lands­bank­ans 238 millj­ónir króna. Stein­þór Gunn­ars­son, fyrrum for­stöðu­maður verð­bréfa­sviðs bank­ans, var sýkn­aður af kröfum slita­stjórn­ar­innar í mál­inu.

Mönn­unum þremur var stefnt vegna tjóns sem slita­stjórn gamla Lands­bank­ans taldi sig hafa orðið fyrir vegna kaupa bank­ans á bréfum í sjálfum sér, Eim­skipum og Straumi-­Burða­rás á tíma­bil­inu 7. nóv­em­ber 2007 til 25. júlí 2008. Slita­stjórnin krafð­ist skaða­bóta vegna þess­arra við­skipta, en stærstu hlut­hafar Eim­skips og Straums- Burða­rás á þessum tíma voru feðgarnir Björgólfur Thor Björg­ólfs­son og Björgólfur Guð­munds­son, sem voru líka stærstu eig­endur Lands­bank­ans.

Slita­stjórn Lands­bank­ans vildi meina að sak­næmi Sig­ur­jóns í mál­inu hafi falist í því að hann hafi "af ásetn­ingi eða stór­felldu gáleysi gefið sam­þykki fyrir umræddum kaupum þótt hann hafi vitað eða mátt vita að ekki væru upp­fyllt skil­yrði áhættu­reglna bank­ans fyrir kaup­unum og regl­unnar um að bank­inn mætti ekki eiga nema 10% eigin hluti. Þá hefur stefndi sýnt af sér stór­fellt gáleysi með því að hlut­ast ekki til um að hluta­bréfin yrðu seld þegar fyrir lá að kaupin höfðu verið gerð án heim­ildar og í bága við reglur bank­ans og lög."

Auglýsing

Sak­næmi Yngva Arnar hafi falist í að "hafa af ásetn­ingi eða stór­felldu gáleysi gefið sam­þykki fyrir umræddum kaupum þótt hann hafi vitað eða mátt vita að ekki væru upp­fyllt skil­yrði áhættu­reglna bank­ans fyrir kaup­unum og regl­unnar um að bank­inn mætti ekki eiga nema 10% eigin hluti. Þá hefur stefndi sýnt af sér stór­fellt gáleysi með því að hlut­ast ekki til um að hluta­bréfin yrðu seld þegar fyrir lá að kaupin höfðu verið gerð án heim­ildar og í bága við reglur bank­ans og lög."

Þá vildi slita­stjórnin meina að Stein­þór hefði einnig sýnt af sér sak­næma hátt­sem­i, einkum með því að hann hafi af ásetn­ingi eða stór­felldu gáleysi "keypt inn á miðl­un­ar­bók hluta­bréfa II og/eða gefið fyr­ir­mæli um kaup á hluta­bréf­unum án þess að upp­fyllt væru skil­yrði þeirra heim­ilda sem hann hafði til kaupanna sam­kvæmt áhættu­reglum bank­ans. Jafn­framt er hann sak­aður um kaup á eigin hlutum í bank­anum þótt hann hafi haft upp­lýs­ingar um að bank­inn ætti þegar hluti yfir þeim 10% mörkum sem reglur mæltu fyrir um. Loks fyrir að hlut­ast ekki til um að hluta­bréfin yrðu seld þótt bank­inn hafi haldið á þeim í meira en einn mán­uð."

Í dómnum er til­tekið að það tjón sem slitabú gamla Lands­bank­ans hafi orðið fyrir vegna við­skipt­anna sé að "eng­inn hluti af kaup­verði umræddra hluta­bréfa hafi feng­ist end­ur­heimtur og byggir stefn­andi á því að hluta­bréfin hafi orðið verð­laus þann 7. októ­ber 2008. Leggja verði til grund­vallar í máli þessu að ef umrædd hluta­bréf hefðu ekki verið keypt og vistuð á miðl­un­ar­bók hluta­bréfa II þá hefði and­virði þeirra á þeim tíma sem þau voru keypt inn á bók­ina ekki glat­ast. Heild­ar­upp­hæð umræddra hluta­bréfa­kaupa hafi numið alls 1.208.244.352 krónum en sam­kvæmt því sé ljóst að tjón stefn­anda nemi þeirri fjár­hæð."

Stein­þór var, líkt og áður sagði, sýkn­aður af kröfum slita­stjórnar gamla Lands­bank­ans en Sig­ur­jón og Yngi Örn þurfa að greiða slita­stjórn­inni tæp­lega 238 millj­ónir króna auk vaxta.

Hér­aðs­dómur fellst ekki á allar máls­á­stæður stefn­anda og því er mönn­unum ekki gert að greiða allt það tjón sem slita­stjórnin fór fram á.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None