Sjaldgæfara að konur biðji um launahækkun - tilgangur kynjakvóta að breyta hugsunarhætti

birna.einarsdottir-1.jpg
Auglýsing

Þrátt fyrir að búið sé að koma á kynja­kvótum í stjórnum fyr­ir­tækja fjölgar konum ekki sjálf­krafa á fram­kvæmda­stjóra­stigi og þró­unin í jafn­rétt­is­málum er hæg, segir Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, á opnum fundi bank­ans og Ungra athafna­kvenna, sem var hald­inn í gær undir yfir­skrift­inn­i „Ljónin í veg­in­um”. „Enda snið­göngum við ekki fyr­ir­tæki sem eru ekki að sinna þessu,” sagði hún.

„Ég er aðeins hrædd hvað þetta er að ger­ast hægt,” sagði Birna jafn­framt og bætti því við að það væri umhugs­un­ar­efni að ár eftir ár sé að mæl­ast kyn­bund­inn launa­munur á Íslandi: „Þarna hefðu lög átt að verða sett fyrir löng­u,” sagði Birna og benti á mögu­leik­ann sem fælist í upp­á­skriftum end­ur­skoð­enda fyr­ir­tækja sem dæmi um tæki til að nota gegn launa­muni kynj­anna.

Una Steins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­banka­sviðs bank­ans, flutti erindi í upp­hafi fundar og í kjöl­farið tóku við umræður en aðrir þátt­tak­endur voru Ragna Árna­dótt­ir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­un­ar, Birna Ósk Ein­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hjá Sím­anum og Hall­björn Karls­son fjár­fest­ir. Fund­ar­stjóri var Edda Her­manns­dótt­ir, sam­skipta­stjóri Íslands­banka.

Auglýsing

Birna Ósk sagði að almennt þætti henni kon­urnar sem vinna hjá henni ekki nógu kröfu­harðar eða of þakk­látar fyrir störf­in, og að sama skapi gerðu sér ekki nógu vel grein fyrir því hvað þær gæfu fyr­ir­tæk­inu mik­ið. „Það er miklu sjald­gæfara að konur biðji um launa­hækkun og eftir kreppu, ennþá verra.“

Þátt­tak­endur í umræðum voru sam­mála um að ungar konur í dag mættu enn ýmsum hindr­unum þegar þær stíga út í atvinnu­líf­ið. Þá var einnig nefnt að ábyrgð stjórn­enda væri mikil þegar kæmi að jafn­rétt­is­málum innan fyr­ir­tækja og stofn­ana. Hall­björn Karls­son fjár­festir nefndi sem dæmi að mörg fyr­ir­tæki væru með jafn­rétt­is­stefnu en það væri oftar í orði en ekki á borði: „Til­gangur með lögum um kynja­kvóta er að breyta hugs­un­ar­hætt­i,” sagði Hall­björn. Ragna sagð­ist nú vera orðin sann­færð um að grípa þurfi til rót­tækra aðgerða í jafn­rétt­is­mál­um.

Mjög mik­ill áhugi var á fund­in­um, en yfir­ 600 manns, nær ein­göngu kon­ur. Hægt er að horfa á fund­inn hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None