Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 21,7 prósent - Píratar enn með langmest fylgi

21967353275_7e0b8fa3d2_b.jpg
Auglýsing

Píratar mæl­ast með lang­mest fylgi allra stjórn­mála­flokka, en alls segj­ast 34,2 pró­sent aðspurðra að þeir myndu kjósa þá í nýrri könnun MMR. Þetta er tíunda könn­unin í röð hjá fyr­ir­tæk­inu þar sem Píratar mæl­ast stærsti flokkur lands­ins. Fylg­is­breyt­ingar hjá flokknum í síð­ustu þremur könn­unum eru innan vik­marka.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar 3,6 pró­sentu­stigum á milli kann­anna og mælist nú með 21,7 pró­sent fylgi. Það er með því lægsta sem flokk­ur­inn hefur mælst með á þessu kjör­tíma­bili, en lands­fundur hans fer fram um kom­andi helgi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 23,7 pró­sent atkvæða í síð­ustu þing­kosn­ing­um.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, hinn rík­is­stjórn­ar­flokk­ur­inn, mælist með 10,4 pró­sent fylgi. Hann mæld­ist með 11,8 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun MMR sem var birt í 24. sept­em­ber. Flokk­ur­inn er langt frá kjör­fylgi sínu, en hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum vorið 2013 og var þá ótví­ræður sig­ur­veg­ari þeirra kosn­inga.

Auglýsing

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist ein­ungis 31,4 pró­sent nú þegar kjör­tíma­bilið er rúm­lega hálfn­að. Hann dalar lít­il­lega á milli kann­anna en stuðn­ing­ur­inn hefur mæst rétt rúm­lega 30 pró­sent frá því í vor.



Vinstri grænir bæta við sig



Vinstri grænir taka stökk upp í nýju könn­un­inni. Þeir mæl­ast nú með 11,8 pró­sent fylgi en voru með 8,3 pró­sent í lok sept­em­ber. Sam­fylk­ingin heldur áfram að mæl­ast með lít­inn stuðn­ing. Nú segj­ast 11,3 pró­sent aðspurðra að þeir myndu kjósa flokk­inn, sem er svipað og í síð­asta könn­un. Sam­fylk­ingin fékk 12,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ing­um, og þótti flokk­ur­inn hafa beðið afhroð.

Björt fram­tíð virð­ist einnig eiga í vand­ræðum með að ná við­spyrnu þrátt fyrir að hafa skipt um áhöfn í brúnni, en Ótt­arr Proppé tók nýverið við sem for­maður flokks­ins af Guð­mundi Stein­gríms­syni. Fylgi flokks­ins mælist nú 6,5 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None