Sjálfstæðismenn, eldra fólk, tekjuhærri og landsbyggðin ánægðust með nýja ríkisstjórn

Ný könnun sýnir að varla nokkur kjósandi Sjálfstæðisflokks er óánægður með nýja ríkisstjórn en að rúmlega fimmti hver kjósandi Vinstri grænna sé það. Ánægja með stjórnina mælist minnst hjá yngstu kjósendunum en mest hjá þeim elstu.

Nýr stjórnarsáttmáli kynntur 28. nóvember 2021
Auglýsing

Alls eru 87 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins ánægð með end­ur­nýjað rík­is­stjórn­ar­sam­starf flokks­ins við Vinstri græna og Fram­sókn­ar­flokk. Ein­ungis tvö pró­sent þeirra eru óánægðir með rík­is­stjórn­ina. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Pró­sent hefur gert fyrir Frétta­blaðið og birt er á for­síðu blaðs­ins í dag.

Innan raða Vinstri grænna er staðan önn­ur. Þar eru 53 pró­sent kjós­enda ánægðir með ráða­hag­inn sem flokk­ur­inn valdi sér. Rúm­lega tveir af hverjum þremur Fram­sókn­ar­mönnum eru ánægðir með rík­is­stjórn­ina.

Í könn­un­inni kemur fram að fleiri eru óánægðir með rík­is­stjórn­ina en ánægðir í öllum ald­urs­hópum full­orð­inna undir 44 ára aldri. Hjá eldri kyn­slóð­um, þeim sem eru 45 ára og eldri, snýst þessi staða hins vegar við og þar eru ánægðir fleiri en óánægð­ir. And­staðan eykst eftir því sem aðspurðir eru yngri en vel­þókn­unin eykst eftir því sem þeir eru eldri. Þannig segj­ast ein­ungis 33 pró­sent 18 til 24 ára ánægðir með rík­is­stjórn­ina en 48 pró­sent óánægð­ir, á meðan að 51 pró­sent þeirra sem eru 65 ára og eldri eru ánægðir en 30 pró­sent óánægð­ir.

Sömu sögu er að segja af tekju­hóp­um. Fleiri í tveimur efstu tekju­hóp­unum í könn­un­inni eru ánægðir með stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur en óánægðir en fleiri óánægðir en ánægðir í tveimur lægri tekju­hóp­un­um. Mest er ánægjan í efsta tekju­hópnum þar sem 47 pró­sent eru ánægð með rík­is­stjórn­ina en 37 pró­sent óánægð.

Auglýsing
Þá er mæl­an­legur munur á ánægju með rík­is­stjórn­ina milli kjós­enda á lands­byggð­inni, þar sem 47 pró­sent eru ánægð­ir, og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem þeir eru 39 pró­sent. Enn fremur eru fleiri óánægðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en ánægð­ir, en sú staða snýst við úti á landi.

Mjög svipuð staða og í kosn­ing­unum

Í síð­ustu könnun sem Gallup gerði á fylgi flokka, sem birt var 2. des­em­ber síð­ast­lið­inn kom fram að litlar breyt­ingar voru á fylgi ­flokka milli mán­aða 

Þar bar helst til tíð­inda að fylgi Sam­­fylk­ing­­ar­innar jókst um 0,9 pró­­sent­u­­stig og mæld­ist 10,7 pró­­sent en fylgi Pírata dróst saman um 0,8 pró­­sent­u­­stig og mæld­ist slétt ell­efu pró­­sent.

Fylgi ann­­arra flokka var nán­­ast það sama og það var í lok októ­ber. Stjórn­­­ar­­flokk­­arnir þrír eru þeir flokkar sem njóta mest stuðn­­ings. Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn mæld­ist áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins með 22,7 pró­­sent fylgi og Fram­­sókn sá næst stærsti með 17 pró­­sent fylgi. Vinstri græn fylgdu þar á eftir með 13 pró­­sent fylgi. Sam­eig­in­­legt fylgi rík­­is­­stjórn­­­ar­­flokk­anna var því 52,7 pró­­sent, sem er 0,7 pró­­sent­u­­stigum minna en mán­uði áður og 1,6 pró­­sent­u­­stigum minna en flokk­­arnir þrír fengu sam­an­lagt í kosn­­ing­unum í sept­­em­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent