Sjálfstæðismenn mættu á flesta nefndafundi en Samfylkingarfólk á fæsta

10191540216_18b39cfc29_b1.jpg
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­menn mættu að með­al­tali á flesta nefnd­ar­fundi hjá nefndum Alþingis á nýliðnu þingi, en Sam­fylk­ing­ar­þing­menn fæsta. Þetta má lesa út úr gögnum sem Píratar hafa birt.

„Því er haldið fram að Píratar mæti illa á fundi. Stöpl­arnir sýna heild­ar­fjölda nefnd­ar­funda sem þing­maður og vara­þing­menn hans mættu á,“ stendur á síð­unni sem Píratar hafa sett upp. Gögnin eru fengin af vef Alþing­is.

Í gögn­unum kemur fram að hver þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins mætti að með­al­tali á 91 nefnd­ar­fund í vet­ur. Ásmundur Frið­riks­son mætti á flesta fundi, eða 136. Har­aldur Bene­dikts­son mætti á 132 fundi og var í öðru sæti meðal sjálf­stæð­is­manna. Sá þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem mætti á fæsta fundi var Sig­ríður Á. And­er­sen, en hafa verður í huga að hún kom inn á þing sem vara­maður fyrir Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í nóv­em­ber, og var fram á vor, og kom svo inn aftur en þá fyrir Pétur Blön­dal. Ragn­heiður Rík­arðs­dóttir mætti á næst­fæsta fundi, eða 52 tals­ins.

Auglýsing

Fram­sókn­ar­þing­menn eru í öðru sæti, og mættu að með­al­tali á 88 þing­fundi hver. Páll Jóhann Páls­son ber höfuð og herðar yfir aðra þing­menn flokks­ins, mætti á 146 fundi í vet­ur. Næsti maður á eft­ir, Líneik Anna Sæv­ars­dótt­ir, mætti á 108. Sá þing­maður sem mætti á fæsta fundi var Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, hún mætti á 45 fundi.

Björt fram­tíð er í þriðja sæti á þessum lista, en að með­al­tali mætti hver þing­maður flokks­ins á 83 nefnd­ar­fundi. Björt Ólafs­dóttir mætti á flesta, eða 134 tals­ins, en for­mað­ur­inn Guð­mundur Stein­gríms­son á fæsta, 41.

Hjá Vinstri grænum mætti hver þing­maður að með­al­tali á 78 fundi. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir mætti á flesta þeirra, eða 143. Ögmundur Jón­as­son mætti á fæsta, 49.

Píratar mættu einnig að með­al­tali á 78 fundi hver. Helgi Hrafn Gunn­ars­son mætti á 100 fundi, Jón Þór Ólafs­son á 71 og Birgitta Jóns­dóttir á 62.

Sam­fylk­ingin rekur svo lest­ina, en þing­menn hennar mættu á 63 fundi hver að með­al­tali síð­ast­lið­inn þing­vet­ur. Guð­bjartur Hann­es­son mætti á lang­flesta fund­ina, eða 124. Næsti maður á eftir honum er Oddný Harð­ar­dóttir sem mætti á 75 fundi. Össur Skarp­héð­ins­son mætti á fæsta nefnd­ar­fundi, 32 tals­ins.

Hafa verður í huga að þing­menn geta verið í mis­mörgum nefnd­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None