Skattrannsóknarstjóri grípur ekki til frekari aðgerða gegn þeim sem áttu fé hjá HSBC

hsbc_1015660b.jpg
Auglýsing

Emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefur farið yfir þau gögn sem því bár­ust vegna við­skipta sex aðila með tengsl við Ísland við HSBC bank­ann í Sviss og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þau gefi ekki til­efni til frek­ari aðgerða að hálfu emb­ætts­ins. Þetta er haft eftir Bryn­dísi Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra á mbl.­is.

Þar segir Brynd­is: „Farið hef­ur verið yfir þau gögn en þau vörð­uðu sex aðila. Nið­ur­staðan er sú að þau gefa ekki til­­efni til frek­­ari aðgerða af hálfu emb­ætt­is­ins. Ástæðan er sú að þegar að var gáð vörð­uðu þau ekki ís­­lenska skatt­þegna.“

Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri. Bryn­dís Krist­jáns­dótt­ir, skatt­rann­sókn­ar­stjóri.

Auglýsing

Greint var frá því í febr­úar að breski bank­inn HSBC hefði aðstoðað þús­undir manna um allan heim, en þó einkum í gegnum útibú í Sviss, við að skjóta fé undan skatti með því að fela pen­inga­legar eignir fyrir skatta­yf­ir­völd­um.

Æsi­leg saga af stolnum gögnum



Ít­ar­leg frum­gögn úr við­skipta­manna­gagna­grunni bank­ans, sem tölv­un­ar­fræð­ing­ur­inn Hervé Falci­ani, sem starf­aði sem sér­fræð­ingur hjá HSBC, komst yfir og lak til val­inna fjöl­miðla auk alþjóða­sam­taka um rann­sókn­ar­blaða­mennsku (International Consortium of Investigative Journa­lists) sýndu þetta. Hann komst yfir gögnin haustið 2007, flúði til Frakk­lands með lög­regl­una á hæl­unum og hefur síðan dvalið í Frakk­landi undir vernd yfir­valda þar. Árið 2010 beitti þáver­andi fjár­mála­ráð­herra Frakk­lands og núver­andi fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, Christine Lag­ar­de, sér fyrir því að gögnin yrðu notuð til þess að koma upp um franska skattsvik­ara. Ákveðið var að höfða ekki mál gegn Falci­ani eftir að gögnin höfðu verið skoðuð og greind, og nýtur hann verndar á þeim for­send­um.

Í gögn­unum kom fram að þrettán ein­stak­lings­reikn­ingar hefðu verið opn­aðir hjá bank­anum milli áranna 1995 og 2005 og tengd­ust þeir átján banka­reikn­ing­um. Sex aðilar tengdir Íslandi áttu reikn­ing­ana, og hæsta upp­hæð tengd einum þeirra nemur átta millj­ónum dala. Alls voru heild­ar­inn­stæður þeirra sex aðila sem voru tengdir Íslandi 9,5 millj­ónir dala, um 1,3 millj­arðar króna.

Frönsk skatta­yf­ir­völd komu gögnum um aðil­anna sex til skatt­rann­sókn­ar­stjóra í mars og nú er ljóst að yfir­ferð emb­ætt­is­ins á þeim gögnum er lokið án þess að til frek­ari aðgerða verði grip­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None