Skatturinn fær 140 milljónir til að láta slíta félögum sem skrá ekki raunverulega eigendur

Alls hafa tæplega 1.300 félög ekki uppfyllt skráningarskyldu á raunverulegum eigendum sínum. Hluti þeirra þarf að fara í skiptameðferð, en kostnaður við hana er 350 þúsund krónur á hvern aðila. Sá kostnaður verður greiddur úr ríkissjóði.

Raunverulegir eigendur félaga sem starfa hérlendis áttu árum saman auðvelt með að felast. Það á ekki lengur við.
Raunverulegir eigendur félaga sem starfa hérlendis áttu árum saman auðvelt með að felast. Það á ekki lengur við.
Auglýsing

Á milli umræðna um fjár­laga­frum­varp síð­asta árs gerði meiri­hluti fjár­laga­nefndar til­lögu um 139,5 milljón króna tíma­bundið fram­lag til Skatts­ins í eitt ár til að standa straum af kostn­aði við hefð­bundna skipta­með­ferð þeirra aðila sem sinna ekki skyldu sinni til skrán­ingar á raun­veru­legum eig­end­um. 

Sam­kvæmt lögum um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda getur rík­is­skatt­stjóri kraf­ist skipta á skrán­ing­ar­skyldum aðilum sinni þeir ekki skrán­ing­ar­skyldu sinni.

Í áliti meiri­hlut­ans segir að alls hafi 1.287 skrán­ing­ar­skyldir aðilar ekki upp­fyllt skrán­ing­ar­skyldu sína sam­kvæmt lög­un­um. „Gert er ráð fyrir að af þeim þurfi 378 aðilar að fara í hefð­bundna skipta­með­ferð, og að kostn­að­ur­inn við hana verði 350.000 kr. skipta­trygg­ing á hvern aðila, sem sam­tals svarar til 132,2 m.kr. Auk þess þarf að greiða 19.000 kr. gjald [...] fyrir hvern aðila, sem gera sam­tals 7,2 m.kr. Heild­ar­kostn­aður við að senda 378 aðila í hefð­bundna skipta­með­ferð er því 139,5 m.kr.“

Látið ótalið árum saman að raun­veru­legu eign­ar­haldi var leynt

Árum saman var hægt að kom­­­­ast upp með það að fela eign­­­­ar­hald félaga, með ýmsum leið­­­­um. Ein sú algeng leið var fólgin í því að láta félög, t.d. eign­­­­ar­halds­­­­­­­fé­lög eða rekstr­­­­ar­­­­fé­lög, vera í eigu erlendra félaga, sem voru síðan í eigu ann­­­­arra erlendra félaga, sem voru í eigu sjóða í skatta­­­­skjólum þar sem engar eða litlar kröfur voru gerðar um skrán­ingar og skil á gögn­­­­um. Þannig var hægt að fela hver raun­veru­­­­legur eig­andi félaga er. 

Auglýsing
Financial Act­ion Task Force (FATF) gerði úttekt á Íslandi og skil­aði þeirri nið­­­ur­­­stöðu vorið 2018 að eft­ir­lit Íslands með pen­inga­þvætti fengi fall­ein­kunn. Í kjöl­farið var Ísland sett á hinn svo­kall­aða gráa lista sam­tak­anna fyrir að bregð­ast ekki nægi­lega vel við fjöl­mörgum athuga­semdum um brotala­mir í vörnum gegn pen­inga­þvætt­i.  

Ein af athuga­­­semd­unum sem FATF gerði sneri að því að ekki þurfti að greina frá raun­veru­­­legum eig­endum félaga á Ísland­i. Hér á landi var slíkt eft­ir­lit aðal­lega á hendi banka, en í nið­ur­stöðum úttektar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á getu þeirra til að verj­ast pen­inga­þvætti, sem var birt helg­ina fyrir jól 2019, kom fram að bank­arnir hefði ekki metið upp­­lýs­ingar um raun­veru­­lega eig­endur með sjálf­­stæðum hætti.

Ísland var í eitt ár á gráa list­anum

Lög sem festu í sessi kvaðir um að upp­­­lýsa um raun­veru­­­lega eig­endur þegar nýtt félag er stofn­að hafa verið í gildi frá því í lok ágúst 2019 og hægt hefur verið að senda þær upp­lýs­ingar með raf­rænum hætti til Skatts­ins frá 1. des­em­ber það ár. 

Upp­haf­lega stóð til að gefa öðrum félög­um, þeim sem voru þegar í rekstri, lengri frest en ákveðið var að flýta þeim mörkum þannig að öll félög ættu að skila inn upp­lýs­ingum um raun­veru­lega eig­endur sína fyrir 1. mars 2020.

Ísland var tekið af gráa list­anum í októ­ber 2020, ári eftir að land­inu var bætt á hann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent