Skeytingarleysi og vanvirðing gagnvart hlutverki og ábyrgð Alþingis

Stjórnarandstöðuþingmenn segja að ákvörðun ríkisstjórnar um að halda haustkosningar hafi „þjónað því markmiði að framlengja valdasetutímabil flokkanna fram yfir sumarið“. Fyrir vikið fari vinna við fjárlagafrumvarpið fram undir „gríðarlegri tímapressu.“

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er framsögumaður nefndarálits minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er framsögumaður nefndarálits minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Auglýsing

Minni­hluti efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, sem sam­anstendur af nefnd­ar­mönnum Sam­fylk­ing­ar, Pírata, Við­reisnar og Flokks fólks­ins, gagn­rýnir harð­lega þá máls­með­ferð sem fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar er að fá sökum þess hversu seint það kom fram, en frum­varpið var lagt fram 30. nóv­em­ber.

Í sam­eig­in­legu nefnd­ar­á­liti minni­hlut­ans um breyt­ingar á ýmsum lögum vegna fjár­laga, svo­kall­aðs band­orms, segir að í stað vand­aðrar máls­með­ferðar fjalli Alþingi nú um málið undir gríð­ar­legri tíma­pressu. „Þessi stutti máls­með­ferð­ar­tími þýðir að umsagn­ar­frestur er skemmri en eðli­legt getur talist og dregur úr mögu­leikum hag­að­ila og almenn­ings til aðkomu að vinnslu máls­ins. Þetta þýðir jafn­framt að allar breyt­ing­ar­til­lögur eru unnar á handa­hlaupum og lík­urnar á mis­tökum marg­fald­ast. Allt ber þetta vott um skeyt­ing­ar­leysi og van­virð­ingu gagn­vart hlut­verki og ábyrgð Alþingis sem lög­gjafa og hand­hafa fjár­veit­ing­ar­valds.“

Mark­miðið að fram­lengja valda­setu

Í álit­inu er vitnað í lög um opin­ber fjár­mál, þar sem gert er ráð fyrir að þings­á­lykt­un­ar­til­laga um fjár­mála­á­ætlun sé lögð fram að vori og umræður um áætl­un­ar­gerð og stefnu­mótun í rík­is­fjár­málum fari þannig fram á fyrri helm­ingi árs. „Með því gef­ist tími á haust­þingi til ítar­legrar og vel ígrund­aðrar vinnu við fjár­laga­frum­varpið sjálft. Ætl­unin var að dreifa álag­inu af með­ferð fjár­veit­ing­ar­valds Alþingis nokkuð jafnt yfir allt árið og stuðla þannig að vand­aðri laga­setn­ingu og ábyrgri stjórn opin­berra fjár­mála.“

Auglýsing
Síðasta rík­is­stjórn, skipuð sömu flokkum og nú fara með völdin í land­inu, hafi hins vegar ákveðið að halda kosn­ing­arnar 2021 að hausti. „Ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að halda alþing­is­kosn­ingar að hausti virð­ist að mestu hafa þjónað því mark­miði að fram­lengja valda­setu­tíma­bil flokk­anna fram yfir sum­ar­ið. Ef alþing­is­kosn­ingar hefðu verið haldnar í vor hefði und­ir­bún­ingur fjár­laga­frum­varps nýrrar rík­is­stjórnar staðið yfir í allt sumar og vand­lega und­ir­búið frum­varp ásamt tengdum málum getað legið fyrir við upp­haf haust­þings. Þess í stað var fjár­laga­frum­varpið lagt fram þann 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn eftir sögu­legan seina­gang við stjórn­ar­mynd­un.“

Undir álitið skrifað Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem er fram­sögu­maður þess, Hall­dóra Mog­en­sen, þing­maður Pírata, Daði Már Krist­ó­fers­son, vara­þing­maður Við­reisnar sem situr á þingi sökum þess að aðal­maður hans kjör­dæmis er smit­aður af COVID-19, og Ást­hildur Lóa Þórs­dótt­ir, þing­maður Flokks fólks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent