Skoða að bæta áskriftargjöldum við afnotagjöld hjá BBC

h_51859431-1.jpg
Auglýsing

Mögu­legt er að breska rík­is­út­varpið BBC verði í fram­tíð­inni fjár­magnað með áskrift­ar­gjöldum ofan á afnota­gjöldin sem nú eru not­uð. Þetta segir John Whitt­ingda­le, menn­ing­ar­mála­ráð­herra Bret­lands, við BBC. Hann segir alla mögu­leika verða skoð­aða í umræð­unni um fram­tíð rík­is­út­varps­ins, en rík­is­stjórnin ætlar að ráð­ast í mikla end­ur­skoðun á stofn­un­inni.

Hann segir mögu­legt að í fram­tíð­inni verði það þannig að hluti stofn­un­ar­innar verði fjár­magn­aður með skyldu­gjöldum og hluti verði með áskriftum sem fólk geti þá borgað að mis­mun­andi hlutum þjón­ust­unn­ar. Þetta sé þó ekki komið annað en á hug­mynda­stig.

Whitt­ingdale til­kynnti það á fimmtu­dag­inn að ráð­ist verði í end­ur­skoðun á starf­sem­inni, stærð BBC, hvað stofn­unin gerir og hvernig hún er fjár­mögn­uð. Hann sagði þá að hann efað­ist um að stofn­unin ætti að reyna áfram að vera „allt fyrir alla.“

Auglýsing

Margir hafa gagn­rýnt áform rík­is­stjórn­ar­innar síð­ustu daga. Whitt­ingdale hefur sagt að stærð og umfang BBC hafi auk­ist veru­lega á síð­asta ára­tug og nú væri rétti tím­inn til að skoða „hvort þessi til­tekna breidd þjón­ustu sé það sem best þjónar þeim sem borga afnota­gjöld.“

Whitt­ingdale segir í dag að hann vilji fá sem flestar raddir fram um fram­tíð stofn­un­ar­inn­ar. Margir myndu segja að stofn­unin væri að gera margt það sama og aðrir fjöl­miðlar í dag­skrár­gerð sinni, en að sama skapi ætti dag­skrár­gerð rík­is­fjöl­mið­ils­ins að vera öðru­vísi.

Hann sagð­ist hissa á því að end­ur­skoð­unin hafi fengið slæmar við­tökur og sagð­ist elska rík­is­út­varp­ið.

„Ég er mik­ill aðdá­andi BBC. Ég hef sagt það margoft að þegar BBC er upp á sitt besta er það besti fjöl­mið­ill í heim­in­um, en á tíu ára fresti rennur stofn­skrá stofn­un­ar­innar út og þá er rétti tím­inn til að skoða það hvað BBC ger­ir, hvernig hún er fjár­mögn­uð, hvernig henni er stjórnað og skoða hvort breyt­ingar þurfi að gera eða ekki.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None