Skýrsla Ríkisendurskoðunar kynnt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á mánudag

Næstum átta mánuðum eftir að íslenska ríkið seldi 22,5 prósent hlut í Íslandsbanka í lokuðu útboði til 207 fjárfesta á verði sem var lægra en markaðsverð bankans mun Ríkisendurskoðun loks birta skýrslu sína um söluferlið.

Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Þórunn Sveinbjarnardóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Auglýsing

Næst­kom­andi mánu­dag, 14, nóv­em­ber, mun Rík­is­end­ur­skoðun kynna skýrslu sína um stjórn­sýslu­út­tekt á sölu­ferli Íslands­banka í mars síð­ast­liðnum fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er rík­is­end­ur­skoð­andi búinn að til­kynna að skýrslan muni ber­ast nefnd­ar­mönnum í tæka tíð til þess að þeir geti kynnt sér efni hennar áður en fund­ur­inn fer fram. Það verði þó ekki á morgun föstu­dag og því fá nefnd­ar­menn skýrsl­una annað hvort á laug­ar­dag eða sunnu­dag. 

Ef haldið verður í venjur mun skýrslan svo verða birt almenn­ingi í kjöl­far kynn­ingar fyrir nefnd­inni. Lands­menn geta því búist við að geta lesið hana á heima­síðu Rík­is­end­ur­skoð­unar seinni part mánu­dags. 

Þá verða næstum átta mán­uðir verða frá því að salan átti sér stað og sjö mán­uðir og sjö dagar verða liðnir frá því að beðið var um hana. Skilin hafa frest­­ast um fjóra og hálfan mán­uð. 

Auglýsing

Skoðað hvort ráðu­neyti og Banka­sýsla hafi farið að lögum

Stjórn­­­­­sýslu­út­­­­­tekt Rík­­­is­end­­­ur­­­skoð­unar snýst í meg­in­at­riðum um hvort fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neyt­ið, sem stýrt er af Bjarna Bene­dikts­­­syni, og Banka­­­sýsla rík­­­is­ins, und­ir­stofnun þess, hafi staðið til­­­hlýð­i­­­lega að fram­­­kvæmd söl­unnar á áður­­­­­nefndum 22,5 pró­­­­sent hlut rík­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­banka til 207 fjár­­­­­­­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­­­­arða króna í mars síð­­­­ast­liðn­­­­­um. 

Hóp­­­­ur­inn sem fékk að kaupa inn­­­­i­hélt meðal ann­­­­­ars starfs­­­­­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­­­­­­­­­festa sem rök­studdur grunur er um að upp­­­­­­­­­fylli ekki skil­yrði þess að telj­­­­­ast fag­fjár­­­­­­­­­fest­­­­­ar, erlenda skamm­­­­­tíma­­­­­sjóði sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir hafi engan áhuga á að vera lang­­­­­tíma­fjár­­­­­­­­­festar í Íslands­­­­­­­­­banka, fólk í virkri lög­­­­­­­­­reglu­rann­­­­­sókn, aðila sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og föður fjár­­­­­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra. 

Þá rann­sakar Fjár­­­­­­­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­­­­banka Íslands (FME) ýmsa þætti söl­unn­­­­ar, sér­­­­­stak­­­­­lega við­­­­­skipti sem áttu sér stað í aðdrag­anda söl­unnar og atferli hluta þeirra sölu­ráð­gjafa sem ráðnir voru til að selja hluti í bank­an­­­­­um. Ekk­ert hefur verið gert opin­bert um stöðu þeirrar rann­­­sóknar en allir fimm inn­­­­­­­lendu sölu­ráð­gjaf­­­­arnir hafa fengið fyr­ir­­­­spurnir frá Fjár­­­­­­­mála­eft­ir­liti Seðla­­­­banka Íslands vegna rann­­­­sóknar þess. 

Að minnsta kosti þrír ráð­herrar búnir að sjá drög að skýrsl­unni

Úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar er gerð að beiðni Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, en hann bað for­m­­­­­­­lega um gerð hennar 7. apríl síð­­­­­­­ast­lið­inn og Rík­­­­­­­is­end­­­­­­­ur­­­­­­­skoðun sam­­­­­­­þykkti að taka að sér verk­ið. Það gerð­ist í kjöl­far þess að sölu­­­­­ferlið var harð­­­­­lega gagn­rýnt víða í sam­­­­­fé­lag­inu. Í bréfi ráðu­­­­­­­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­­­­­­­ast um hvort fram­­­­­­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­­­­­­­­­­­legg stjórn­­­­­­­­­­­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­­­­­­laga­­­­­­­­nefnd og efna­hags- og við­­­­­­­­skipta­­­­­­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­­­­­­ar. 

Það var gert þrátt fyrir háværar kröfur um að skipuð yrði rann­­­­­sókn­­­­­ar­­­­­nefnd Alþing­is, sem hefur mun víð­tæk­­­­­ari rann­­­­­sókn­­­­­ar­heim­ild­ir, til að fara yfir söl­una. Í könnun Gallup frá því í apríl kom fram að næstum þrír af hverjum fjórum aðspurðum vildi að rann­­­­­sókn­­­­­ar­­­­­nefnd yrði skipuð og taldi að ekki væri nægj­an­­­­­legt að Rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoðun skoð­aði mál­ið. Meiri­hluti kjós­­­­­enda allra flokka utan eins, Sjálf­­­­­stæð­is­­­­­flokks, voru á þeirri skoð­un. 

Ýmsir stjórn­­­ar­­þing­­menn tóku til máls í umræðum á Alþingi á þessum tíma og sögðu að ef nið­­ur­­staða þings­ins yrði að úttekt Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar dugði ekki til að lægja öld­­urnar myndu þeir styðja að komið yrði á fót sjálf­­stæðri rann­­sókn­­ar­­nefnd. 

Drög að skýrsl­unni hafa legið fyrir frá 12. októ­ber síð­ast­liðnum þegar Rík­­is­end­­ur­­skoðun sendi fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­inu, Banka­­sýslu rík­­is­ins og stjórn hennar þau til umsagn­ar. Á sama tíma fékk ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins að sjá drög­in. Í þeirri nefnd sitja Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra. 

Upp­runa­lega átti frestur ráðu­neyt­is­ins og Banka­sýsl­unnar til að skila athuga­semdum að renna út 19. októ­ber en hann var fram­lengdur til 25. októ­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent