Skýrsla um dreifingu Leiðréttingarinnar líklega lögð fyrir Alþingi í næstu viku

15995296141_b44e8b37fa_z.jpg
Auglýsing

Vinna við skýrslu Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um nið­ur­stöður höf­uð­stólslækk­unar hús­næð­is­lána er á loka­stígi og von­ast er til að hægt verði að leggja hana fyrir Alþingi á næst­unni. Ekki er ólík­legt að það verði í næstu viku. Þetta segir Elva Björk Sverr­is­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið.

Upp­lýs­ingar í kynn­ingu tak­mark­aðar



Þegar útfærsla á skulda­nið­ur­færslum rík­is­stjórn­ar­innar var kynnt í lok síð­asta árs var það gert með glæru­kynn­ingu. Í þeirri glæru­kynn­ingu vant­aði mikið af upp­lýs­ingum um skipt­ingu nið­ur­færslu­upp­hæða á milli tekju- og ald­urs­hópa. Það vant­aði líka upp­lýs­ingar um frá­drátt­ar­liði og hvernig upp­hæðin sem rynni úr rík­is­sjóði vegna aðgerð­anna, alls um 80 millj­arðar króna, myndi dreifast á mis­mun­andi lands­svæði.

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, lagði því fram fyr­ir­spurn í 15 liðum um málið á Alþingi þann 11. nóv­em­ber 2014.

Bjarni svar­aði fyr­ir­spurn hennar tæpum mán­uði síðar með því að svara ekki þeim spurn­ingum sem Katrín hafði lagt fyrir hann. Þess í stað sagði í svar­inu að ráð­herr­ann hyggð­ist leggja „yrir Alþingi ítar­lega skýrslu um nið­ur­stöður höf­uð­stólslækk­unar hús­næð­is­lána þar sem m.a. verður fjallað um þau atriði sem spurt er um í þess­ari fyr­ir­spurn. Skýrslan mun byggj­ast á stöðu úthlut­unar eins og hún verður við lok sam­þykk­is­frests á ráð­stöfun leið­rétt­ing­ar­fjár­hæðar en eins og er vantar of mikið upp á end­an­legar nið­ur­stöður til að skyn­sam­legt sé að draga nægi­lega mark­tækar álykt­anir um þetta mál. Reiknað er með því að skýrslan verði til­búin og kynnt á vor­þing­i“.

Auglýsing

Leið­rétt­ing­in, skulda­nið­ur­fell­ing­ar­að­gerð rík­is­stjórn­ar­inn­ar, snýr um að láta um 80 millj­arða króna renna úr rík­is­sjóði í nið­ur­greiðslur á hús­næð­is­lán­um, eða í sér­stakan per­sónu­af­slátt, hluta þeirra Íslend­inga sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009.

Fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur frá 11. nóv­em­ber 2014:





  1. Hvernig skipt­ist heild­ar­upp­hæð þeirrar fjár­hæðar sem varið verður til lækk­unar verð­tryggðra fast­eigna­veð­lána ein­stak­linga milli höf­uð­stólslækk­unar og frá­drátt­ar­liða?


  2. Hverjir eru frá­drátt­ar­lið­irnir og hver er skipt­ingin milli þeirra í upp­hæð­um?


  3. Hvert er heild­ar­hlut­fall beinnar höf­uð­stólslækk­un­ar, þ.e. lækk­unar höf­uð­stóls að und­an­skildum frá­drátt­ar­lið­um, af verð­tryggðum fast­eigna­veð­lánum


  4. Hve mikið hafa verð­tryggð lán hækkað frá árinu 2007? 


  5. Hve mikið hefði 20% skulda­nið­ur­færsla lækkað verð­tryggð fast­eigna­veð­lán heim­il­anna?


  6. Hve mikið hefði 250 millj­arða kr. skulda­nið­ur­færsla lækkað verð­tryggð fast­eigna­lán heim­il­anna?


  7. Hver væri upp­hæð leið­rétt­ingar ef hún mið­að­ist við að verð­tryggð hús­næð­is­lán væru færð niður um fjár­hæð sem sam­svarar verð­bótum umfram 4,8% sem féllu til á tíma­bil­inu des­em­ber 2007 til ágúst 2010? 


  8. Hver væri upp­hæð leið­rétt­ingar ef hún mið­að­ist við að verð­tryggð hús­næð­is­lán væru færð niður um fjár­hæð sem sam­svarar verð­bótum umfram 2,5% sem féllu til á tíma­bil­inu des­em­ber 2007 til ágúst 2010?


  9. Hversu margir umsækj­endur um skulda­nið­ur­færslu fá enga beina höf­uð­stólslækk­un?


  10. Hversu margir fram­telj­endur sem greiddu auð­legð­ar­skatt fá nið­ur­færslu?


  11. Hversu há upp­hæð rennur til þeirra fram­telj­enda sem borga auð­legð­ar­skatt?


  12. Hvernig dreif­ist heild­ar­upp­hæðin á tekju­bil hvers tíunda hluta fyrir sig? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert tekju­bil?



  13. Hve stór hluti heild­ar­upp­hæð­ar­innar fer til fólks með tekjur yfir mið­gildi tekna?



  14. Hvernig dreif­ist heild­ar­upp­hæðin eftir þeim lands­hlutum þar sem fram­telj­endur eru búsett­ir?



  15. Hve stór hluti heild­ar­upp­hæð­ar­innar fer til fram­telj­enda sem eru yfir með­al­aldri?


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None