Slitnar upp úr SALEK-viðræðum - stefnir að óbreyttu í „efnahagslegt stórslys“

5.jpg
Auglýsing

Slitnað hefur upp úr við­ræðum helstu við­semj­enda á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði, svo­kall­aðs SALEK-hóps. Hóp­ur­inn hefur und­an­farin þrjú ár unnið að því að inn­leiða bætt vinnu­brögð við gerð kjara­samn­inga á Íslandi, að nor­ræni fyr­ir­mynd.

Sam­tök atvinnu­lífs­ins greina frá þessu í frétta­til­kynn­ingu og segir að það hafi verið heild­ar­sam­tök opin­berra starfs­manna sem hafi ekki treyst sér til að vinna áfram á þeim grund­velli sem var til umræðu.

SALEK stendur fyrir sam­starfs­nefnd um launa­upp­lýs­ingar og efna­hags­for­sendur kjara­samn­inga. Að nefnd­inni standa fern heild­ar­sam­tök launa­fólks, Alþýðu­sam­band Íslands, Banda­lag háskóla­manna, Banda­lag starfs­manna ríkis og bæja og Kenn­ara­sam­band­ið, og fyrir hönd vinnu­veit­enda Sam­tök atvinnu­lífs­ins, Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið.

Auglýsing

Hag­fræð­ingar hjá ASÍ, BHM, BSRB, KÍ og SA, auk hag­fræð­inga hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og Sam­bandi sveit­ar­fé­laga, lögðu mat sam­eig­in­lega á áhrif launa­hækk­ana á árinu á verð­bólgu, kaup­mátt launa, stýri­vexti og gengi krón­unn­ar. Í minn­is­blaði hag­fræð­ing­anna til SALEK-hóps­ins segir meðal ann­ars að verð­bólga muni lík­lega fara fljótt yfir verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans og fari svo enn lengra frá því þegar líður á samn­ings­tím­ann.

„Við þessar aðstæður er reiknað með að vextir verði háir og gengi krón­unnar muni gefa eftir þrátt fyrir hækk­andi vexti, vegna lak­ari sam­keppn­is­stöðu og versn­andi við­skipta­jafn­að­ar. Bæt­ist launa­skrið ofan á þessa mynd er ljóst að verð­bólgu­horfur versna enn frekar, gengi krón­unnar verður veik­ara en ella og vextir SÍ hærri. Gera má ráð fyrir að kaup­máttur launa vaxi mikið til skemmri tíma, en vöxtur hans stöðv­ist og veik­ist síðan til lengri tíma með vax­andi verð­bólg­u,“ segir meðal ann­ars í minn­is­blað­inu.

Von­ast hefur verið eftir nið­ur­stöðu af funda­höldum SALEK-hóps­ins og hefur meðal ann­ars verið beðið með að und­ir­rita ýmsa kjara­samn­inga vegna funda­hald­anna.

Grafal­var­leg staða blasir við



Í frétta­til­kynn­ing­unni frá Sam­tökum atvinnu­lífs­ins er haft eftir Þor­steini Víglunds­syni fram­kvæmda­stjóra að nið­ur­staðan valdi miklum von­brigð­um. „Það má öllum vera ljóst að grafal­var­leg staða blasir við í efna­hags­málum ef ekki tekst að koma böndum á þær miklu launa­hækk­anir sem hafa verið á vinnu­mark­aðnum und­an­farna mán­uði, eins og skýrt kemur fram í nið­ur­stöðu hag­fræð­inga allra sam­tak­anna sem tekið hafa þátt í vinnu SALEK-hóps­ins,“ segir Þor­steinn. Hann segir að ef stétt­ar­fé­lög opin­berra starfs­manna haldi áfram að halda á lofti kröfum um sér­stakar launa­hækk­anir umfram það sem samið hefur verið um á almennum mark­aði muni allir tapa. „Það er sam­eig­in­leg ábyrgð allra samn­ings­að­ila að ná skyn­sam­legri nið­ur­stöðu til að forða efna­hags­legu stór­slysi sem að óbreyttu stefnir í.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None