Sólfar og CCP vekja athygli á E3 sýningunni

IMG_0930-2.jpg
Auglýsing

Íslenska sýnd­ar­veru­leika-­fyr­ir­tækið Sól­far Studios og tölvu­leikja­fram­leið­and­inn CCP léku bæði hlut­verk á kynn­ing­ar­fundi Sony á E3 tölvu­leikja­ráð­stefn­unni í Los Ang­eles borg fyrr í vik­unni, þegar Andrew Hou­se, for­stjóri Sony Enterta­in­ment, kynnti fram­tíð­ar­sýn fyr­ir­tæk­is­ins fyrir Playsta­tion 4 leikja­tölv­una. Sól­far hefur gert sam­starfs­samn­ing við Sony um fram­leiðslu sýnd­ar­veru­leika-­tölvu­leiks en Sony ­stefnir að því að gefa út Project Morpheus, sýnd­ar­veru­leika­búnað fyrir Playsta­tion 4, á næsta ári. E3 tölvu­leika­ráð­stefnan er sú stærsta sinnar teg­und­ar.

Tölvu­leikur Sól­fars heitir God­ling. Spi­lendur munu fara í hlut­verk God­ling, guðs á unga­barns­aldri, og kynn­ast sýnd­ar­veru­leika leiks­ins í gegnum hann.  Stutt brot úr leiknum má sjá hér að neðan og lesa má um hann hér.

Auglýsing




Stofn­endur Sól­fars eru þrír fyrrum lyk­il­menn hjá CCP, þeir Reynir Harð­ar­son, Þor­steinn Högni Gunn­ars­son og Kjartan Pirre Emils­son. Þeir stofn­uðu fyr­ir­tækið í októ­ber á síð­asta ári og vinna að gerð sýnd­ar­veru­leika­leikja. „Við sem stöndum að Sól­fari fórum strax að tala um þetta. Að þetta væri of gott tæki­færi til að sleppa að taka þátt í þess­ari þróun sem er að fara að eiga sér stað. Ég hef aldrei fengið svona til­finn­ingu áður. Þetta er ein stærsta breyt­ingin sem hefur orðið á tölvu­leikja­geir­anum frá upp­hafi. Ann­ars vegar að sýnd­ar­veru­leik­inn sé kom­inn og hins vegar að hægt sé að nálg­ast vél, Unr­eal 4, sem gerir manni kleift að búa til efni án þess að vera með her for­rit­ara,“ sagði Reynir um til­urð fyr­ir­tæk­is­ins og þennan nýja markað sýnd­ar­veru­leika, í við­tali við Kjarn­ann í apríl síð­ast­liðn­um.



CCP gerir leik fyrir Morpheus



Á kynn­ing­ar­fund­inum tal­aði for­stjóri Sony Enterta­in­ment einnig um CCP, sem eins og Sól­far á í sam­starfi við Sony um útgáfu leiks. Stefnt er að útgáfu tölvu­leiks­ins EVE: Val­kyrie og mun hann not­ast við áður­nefnd Morpheus sýnd­ar­veru­leika­gler­augu. CCP hefur áður til­kynnt að leik­ur­inn komi út fyrir PC leikja­vélar og verður þá spil­an­legur með þrí­vídd­ar­bún­aði Oculus Rift.  Brot úr leiknum má sjá hér:





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None