Spá verðbólgu undir markmiði í ágúst en hækkunum í haust

bankar_island.jpg
Auglýsing

Spár grein­ing­ar­deilda Íslands­banka, Arion banka og Lands­bank­ans gera ráð fyrir því að verð­bólga mælist á bil­inu 1,7 til 1,9 pró­sent í næstu verð­bólgukönnun Hag­stof­unn­ar, sem verður opin­beruð þann 27. ágúst næst­kom­andi. Grein­ing Íslands­banka spáir 0,5 pró­senta hækkun verð­lags milli mán­aða (sem myndi þýða 1,9 pró­senta hækkun verð­lags á síð­ustu tólf mán­uð­u­m), grein­ing­ar­deild Arion banka spári 0,2 pró­sent hækkun verð­lags (1,8 pró­sent árs­verð­bólga) og hag­fræði­deild Lands­bank­ans spáir 0,1 pró­sent hækkun verð­lags (1,7 pró­sent hækkun árs­verð­bólg­u). Verð­bólgan í júlí mæld­ist 1,9 pró­sent.

Gangi spárnar eftir helst verð­bólga á Íslandi undir 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans 19. mán­uð­inn í röð, eða frá því í febr­úar 2014.

Auglýsing

Mikil verð­bólga í kort­unum

Grein­ingar bank­anna gera allar ráð fyrir tölu­verðri hækkun verð­bólgu á haust­mán­uðum og að hún muni mæl­ast yfir þremur pró­sentum í nóv­em­ber. Í hag­sjá Lands­bank­ans í dag eru ástæður fyrir hækk­andi verð­bólgu sagðiar vera kjara­samn­ings­bundnar launa­hækk­anir ásamt launa­skriði, aukin inn­lend eft­ir­spurn, hækkun verð­bólgu­vænt­inga ásamt boð­uðum útgjöldum í rík­is­rekstri til að liðka fyrir kjara­samn­ing­um. Þessir þættir muni byrja að skila sér í hækk­andi verð­lagi á Íslandi í sept­em­ber.



Við spáum því að árstaktur verð­bólg­unnar fari hratt hækk­andi á næst­unni. Hluti af skýr­ing­unni liggur í því að olíu­verð fór hríð­lækk­andi síð­ast­liðið haust og lækk­aði heims­mark­aðs­verð á olíu í kringum 50% á stuttum tíma. Sam­hliða því lækk­uðu flug­far­gjöld til útlanda og elds­neyt­is­verð inn­an­lands umtals­vert og fór verð­bólgan hratt lækk­andi í kjöl­far­ið. Þró­unin framundan mun frekar lit­ast af hækk­unum á inn­lendum neyslu­vörum í kjöl­far kjara­samn­inga og mun það þrýsta árs­verð­bólg­unni hratt upp á við þar sem um er að ræða tölu­vert meiri verð­lags­hækk­anir en á sama tíma í fyrra. Í spá okkar fyrir næstu mán­uði gerum við ráð fyrir að gengi krón­unnar og elds­neyt­is­verð standi í stað en nokkrar líkur eru á því að elds­neyt­is­verð haldi áfram að lækka. Einnig má vera að gengi krón­unnar styrk­ist á kom­andi mán­uðum ef horft er til gjald­eyr­is­inn­flæðis inn í landið að und­an­förnu. Það má því vera að verð­bólgu­spáin verði færð niður á við á næstu mán­uð­u­m,“ segir grein­ing­ar­deild Arion banka um horf­urnar næstu miss­eri.



Grein­ing Íslands­banka segir þrýst­ing á íbúða­verð og launa­hækk­anir hafa áhrif til hækk­unar verð­bólgu eftir því sem nær dregur árs­lok­um. „Við teljum að verð­bólga muni aukast eftir því sem nær dregur árs­lokum og dag­ur­inn stytt­ist. Að hluta til er ástæðan sú að tíma­bil verð­stöðn­unar á seinni hluta síð­asta árs dettur út úr 12 mán­aða mæl­ingu vísi­tölu neyslu­verðs. Súverð­stöðnun kom til að stærstum hluta vegna hag­stæðrar þró­unar elds­neyt­is­verðs, áhrifa af breyt­ingum á sköttum og gjöldum á neyslu­varn­ingi og fremur lít­ils kostn­að­ar­þrýst­ings inn­an­lands eftir hóf­sama kjara­samn­inga í upp­hafi síð­asta árs.



Við þetta bæt­ist þó að inn­lendur verð­bólgu­þrýst­ingur er að aukast tölu­vert nú um stund­ir. Þar vegur þungt umtals­verð hækkun launa hjá stórum hluta vinnu­mark­að­ar­ins í nýlegum kjara­samn­ing­um, en einnig kemur til við­var­andi hækkun raun­verðs íbúð­ar­hús­næðis og vax­andi fram­leiðslu­spenna á ýmsum sviðum hag­kerf­is­ins. Munu þessir þættir þrýsta upp verð­bólgu þrátt fyrir lít­inn inn­fluttan verð­þrýst­ing að mati okk­ar, og leiða til þess að verð­bólgan verður tals­vert yfir 2,5% mark­miði Seðla­bank­ans næstu árin,“ segir í morg­un­korni grein­ingar Íslands­banka í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None