Spá yfir 3 prósenta vöxtum innan tveggja ára

Íslandsbanki býst við að stýrivextir Seðlabankans haldist óbreyttir næstu mánuðina, en hækki svo jafnt og þétt frá síðasta fjórðungi ársins fram að árslokum 2023.

Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka
Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka
Auglýsing

Stýri­vextir gætu orðið 1,25 pró­sent í lok árs­ins og komnir yfir 3 pró­sent fyrir árs­lok 2023. Þetta kemur fram í upp­færðri þjóð­hags­spá Íslands­banka fyrir tíma­bilið 2021-2023 sem birt­ist í morg­un.

Sam­kvæmt spánni er ólík­legt að vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans verði mjög bratt­ar, þar sem verð­bólgu­vænt­ingar til langs tíma í all­góðu sam­ræmi við verð­bólgu­mark­miðið og margt bendi til þess að virkni pen­inga­stefn­unnar sé orðin mun meiri en áður. Því þurfi síður að grípa til umfangs­mik­illar hækk­unar vaxta til að hafa áhrif á efna­hags­lífið og verð­bólgu­horfur til með­al­langs tíma.

Auglýsing

Þjóð­hags­spáin gerir ráð fyrir að stýri­vextir muni hald­ast óbreyttir í einu pró­senti í nokkra mán­uði í við­bót, en að þeir verði svo hækk­aðir í 1,25 pró­sent í árs­lok. Í kjöl­farið á því er svo búist við hæg­fara hækk­un­ar­ferli og að vext­irnir verði komnir upp í 3,25 pró­sent undir lok spá­tím­ans í árs­lok 2023.

Bank­inn telur hins vegar ekki aug­ljóst að lang­tíma­vext­ir, sem eru nú rétt tæp­lega 4 pró­sent, muni hækka mik­ið, þar sem lang­tíma­fjár­festar búist við að stýri­vextir komi til með að hækka í náinni fram­tíð. Mögu­lega muni þeir hækka örlítið á þessu ári, en bank­inn býst þó við að þeir verði innan við fjögur pró­sent næstu tvö árin.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent