Staða AFLs sparisjóðs mun verri en áður var haldið - fær að sameinast Arion banka

Arion.banki_..Sm_.ra.tib_..jpg
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur heim­ilað sam­ein­ingu Arion banka og AFLs spari­sjóðs eftir að mat KPMG á lána­safni sjóðs­ins leiddi í ljós að staða hans er mun verri en fram kom í síð­asta árs­reikn­ingi. AFL þarf á veru­legu eig­in­fjár­fram­lagi að halda til að upp­fylla kröfur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um eig­in­fjár­hlut­fall og því hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið nú end­ur­skoðað fyrri ákvörðun og heim­il­að ­Arion banka að sam­eina AFL spari­sjóð bank­anum þar sem spari­sjóð­ur­inn er tal­inn fjár­mála­fyr­ir­tæki á fallanda fæti. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Arion banka.

Því mun Arion banki stækka sem nemur eignum og skuldum AFLs.

Áttu að selja sjóð­inn fyrir 1. ágúst



AFL spari­sjóður hefur um nokk­urra mán­aða skeið ekki upp­fyllt kröfu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um eig­in­fjár­hlut­fall og hefur Arion banki, sem langstærsti eig­andi stofn­fjárs með 99,3 pró­sent eign­ar­hlut, unnið að mál­efnum sjóðs­ins í sam­starfi við stjórn hans, Fjár­mála­eft­ir­litið og Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið.

Í byrjun maí til­kynnti Sam­keppn­is­eft­ir­litið að sátt hefði náðst um að Arion banki þyrfti að selja AFL í skil­greindu ferli fyrir 1. ágúst 2015. Arion banki aug­lýsti spari­sjóð­inn til sölu í sam­ræmi við fram­an­greinda sátt, með aug­lýs­ingu í Við­skipta­blað­inu. Þar var fjár­festum sem vilja taka þátt í útboð­inu gef­inn frestur til að skila upp­lýs­ing­um.

Auglýsing

DV greindi frá því á sama tíma að efna­hags­ráð­gjafi rík­is­stjórnar Íslands þegar kemur að hinni svo­nefndu leið­rétt­ingu, Tryggvi Þór Her­berts­son, hefði hug á því að kaupa AFL spari­sjóð og væri í við­ræðum við fjár­festa um þátt­töku í þessum við­skipt­um. Meðal þeirra sem nefndir eru sem mögu­legir þátt­tak­endur í við­skipt­unum eru Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og aðrir fjár­festar á Norð­ur­landi.

Staðan mun verri en árs­reikn­ingur sagði til um



Nú er ljóst að ekk­ert varð af þeim kaup­um. Í til­kynn­ingu frá Arion banka í dag kemur fram að AFL hafi feng­ið end­ur­skoð­endur KPMG til að meta lána­safn sjóðs­ins. "Sú vinna hefur leitt í ljós að staða sjóðs­ins er mun verri en fram kemur í síð­asta árs­reikn­ingi og þarf sjóð­ur­inn á veru­legu eig­in­fjár­fram­lagi að halda til að upp­fylla kröfur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um eig­in­fjár­hlut­fall. Úrlausn laga­legs ágrein­ings varð­andi erlend lán AFLs myndi þar engu breyta um. Eft­ir­lits­að­ilar hafa verið upp­lýstir um stöðu sjóðs­ins. Að höfðu sam­ráði við Fjár­mála­eft­ir­litið hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið nú end­ur­skoðað fyrri ákvörðun og heim­ilað

Því hefur verið fallið frá ákvörðun um sölu AFLs og mun Arion banki þegar í stað ráð­ast í að sam­eina AFL spari­sjóð bank­an­um. Þar til sam­ein­ing­ar­ferl­inu er lokið mun Arion banki standa þétt að baki AFLi spari­sjóði og veita honum þá fyr­ir­greiðslu sem nauð­syn­leg er. Þetta á bæði við um ný útlán sem og inn­lán við­skipta­vina. AFL spari­sjóður er stað­settur á Siglu­firði og rekur auk þess útibú á Sauð­ár­króki. Mark­mið Arion banka er að reka öfl­uga fjár­mála­þjón­ustu á starfs­svæði AFLs spari­sjóðs og leggja þannig sitt af mörkum til upp­bygg­ingar atvinnu­lífs og sam­fé­lags á svæð­in­u."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None