Staðan í borginni: Píratar mælast stærstir en Framsókn og flugvallarvinir minnst

radhus.jpg
Auglýsing

Píratar mæl­ast með mest fylgi í Reykja­vík sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun sem Gallup gerði fyrir Við­skipta­blaðið. Alls fengi flokk­ur­inn 27,5 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag. Flokk­ur­inn fékk 5,9 pró­sent í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í fyrra­vor og marg­faldar því fylgi sitt, líkt og hann hefur raunar gert á lands­vísu þar sem fylgið hefur mælst yfir 30 pró­sent síð­ast­liðið hálft ár.

Halldór Auðar Svansson leiðir Pírata í Reykjavík. Ef kosið yrði í dag gæti hann gert tilkall til borgarstjórastólsins, enda flokkur hans sá stærsti samkvæmt nýbirtri könnun. Hall­dór Auðar Svans­son leiðir Pírata í Reykja­vík. Ef kosið yrði í dag gæti hann gert til­kall til borg­ar­stjóra­stóls­ins, enda flokkur hans sá stærsti sam­kvæmt nýbirtri könn­un.

Sú breyt­ing verður gerð að loknum næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum að borg­ar­full­trúum verður fjölgað úr 15 í 23-31. Helga Lax­dal, skrif­stofu­stjóri Reykja­vík­ur­borg­ar, segir í Við­skipta­blað­inu í dag að flest bendi til þess að þeir verði 23. Miðað við það fá Píratar sjö borg­ar­full­trúa. Þeir eru með einn í dag.

Auglýsing

Sam­fylk­ing­in, sem vann mik­inn kosn­ing­ar­sigur í Reykja­vík í fyrra, dalar tölu­vert frá kjör­fylgi sínu. Í kosn­ing­unum 2014 fékk flokk­ur­inn 31,9 pró­sent fylgi og Dagur B. Egg­erts­son, odd­viti hans, varð í kjöl­farið borg­ar­stjóri. Nú mælist fylgi flokks­ins 24,7 pró­sent. Miðað við ætl­aðar breyt­ingar fær flokk­ur­inn hins vegar fleiri borg­ar­full­trú en hann er nú með, eða sex í stað fimm. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar í borg­inni er þó enn langt um hærra en fylgi flokks­ins á lands­vísu, þar sem hann mælist með 10,1 pró­sent fylgi.



Kallað eftir því að Hall­dór hug­leiði að víkja



Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er orð­inn þriðji stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík sam­kvæmt könn­un­inni, en hann var ára­tugum saman með hreinan meiri­hluta í henni. Fylgi flokks­ins mælist nú 23,4 pró­sent, sem er 2,3 pró­sentu­stigum minna en hann fékk í kosn­ing­unum 2014. Miðað við ætl­aðar breyt­ingar á fjölda borg­ar­full­trúa myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá fimm borg­ar­full­trúa.

Í leið­ara Við­skipta­blaðs­ins er kallað eftir því að Hall­dór Hall­dórs­son, odd­viti flokks­ins, hug­leiði að víkja í ljósi stöð­unn­ar. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík er nán­ast það sama og fylgi flokks­ins á lands­vísu, þar sem hann mælist með 24,3 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Gallup.

Halldór Halldórsson er oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavík. Í leiðara Viðskiptablaðsins í dag er kallað eftir því að hann axli ábyrgð á lágu fylgi flokksins í borginni og stigi til hliðar. Hall­dór Hall­dórs­son er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík. Í leið­ara Við­skipta­blaðs­ins í dag er kallað eftir því að hann axli ábyrgð á lágu fylgi flokks­ins í borg­inni og stigi til hlið­ar­.

Fram­sókn og flug­vall­ar­vin­ir, sem náðu ótrú­legum enda­spretti í síð­ustu kosn­ingum þar sem fram­boðið hífði sig upp í 1o,7 pró­sent fylgi og náði inn tveimur mönn­um, fat­ast flugið sam­kvæmt könn­un­inni. nú mælist fylgið 4,4 pró­sent sem hefði ekki dugað flokknum til að ná inn manni sam­kvæmt gild­andi regl­um. Sam­kvæmt ætl­uðum breyt­ingum næði flokk­ur­inn hins vegar einum manni inn í borg­ar­stjórn miðað við núver­andi fylgi.

Björt fram­tíð dalar líkt og á lands­vísu



Staða Vinstri grænna hefur batnað frá síð­ustu kosn­ingum og flokk­ur­inn mælist nú með ell­efu pró­sent fylgi, sem er 2,7 pró­sentu­stigum meira en hann fékk 2014. Miðað við þetta myndi borg­ar­full­trúum hans fjölga úr einum í tvo. Fylgi flokks­ins í Reykja­vík er mjög svipað og á lands­vísu, þar sem það mælist nú 10,6 pró­sent.

Björt fram­tíð, sem spratt meðal ann­ars fram uppúr dreggjum hins gríð­ar­lega vin­sæla Besta flokks, sig­ur­veg­ara sveit­ar­stjórn­ars­kosn­ing­anna 2010, heldur áfram að dala í fylgi í höf­uð­vígi sínu Reykja­vík. Sú þróun er í fullum takti við þróun fylgis flokks­ins á lands­vísu. Nú mælist fylgi Bjartrar fram­tíðar í borg­inni 8,1 pró­sent. Það hefur tæp­lega helm­ing­ast frá því að kosið var í fyrra­vor, þegar flokk­ur­inn fékk 15,6 pró­sent atkvæða. Það er óra­fjarri þeirri stöðu sem var uppi eftir kosn­ing­arnar 2010 þegar Besti flokk­ur­inn fékk 34,7 pró­sent allra greiddra atkvæða og sex borg­ar­full­trúa. Björt fram­tíð myndi hins vegar fá tvo borg­ar­full­trúa ef kosið væri í dag, líkt og flokk­ur­inn fékk eftir síð­ustu kosn­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None