Starfsgreinasambandið slítur viðræðum við SA

Þorsteinn-víglundsson-nytt.jpg
Auglýsing

Starfs­greina­sam­band Íslands sleit í dag samn­inga­við­ræðum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins um end­ur­nýjun kjara­samn­inga. „SGS hafnar nálgun SA um að halda áfram að byggja upp kaup­mátt launa á grund­velli verð­stöð­ug­leika. Í stað þess er nálgun SGS að krefj­ast tug­pró­senta launa­hækk­ana sem mun leiða til mik­illar verð­bólgu á skömmum tíma og stökk­breyta verð­tryggðum skuldum heim­ila og fyr­ir­tækja, hækka vexti og fella gengi krón­unn­ar,“ segir í til­kynn­ingu frá Sam­tökum atvinnu­lífs­ins vegna þessa. Enn fremur segir í til­kynn­ing­unni að SA hafi á „und­an­förnum vikum lagt fram ítar­leg gögn og grein­ingar á samn­inga­fundum með SGS og hjá rík­is­sátta­semj­ara sem sýna að sú leið sem Starfs­greina­sam­bandið vill fara er ófær. Verði hún farin mun hún valda sam­fé­lag­inu miklu tjóni og gera að engu þann mikla árangur sem náð­ist í kjöl­far síð­ustu kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­að­i.“

Innan SGS eru sextán aðild­ar­fé­lög og tólf þús­und félags­menn. SGS hefur lagt áherslu á að laun þeirra stétta sem eru með lægstu launin verði hækkuð veru­lega, eða um 20 til 30 pró­sent. Á meðan hefur SA horft til þess að svig­rúm til launa­hækk­ana sé 3,5 til 5 pró­sent.

Þá segir í til­kynn­ingu frá SA að ekki sé hægt að fall­ast á upp­legg við­ræðna. „SGS boða verk­falls­að­gerðir en tjón sem verk­föllin munu valda er alfarið á ábyrgð sam­bands­ins. Sam­tök atvinnu­lífs­ins geta undir engum kring­um­stæðum fall­ist á að leggja upp í ferð sem vitað er að muni enda með ósköp­um,“ segir í til­kynn­ingu SA.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None