Stefán Einar hættir sem fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu – Gísli Freyr tekur við

Breytingar hafa orðið á stjórnendateymi Morgunblaðsins. Stefán Einar Stefánsson víkur af viðskiptadeild blaðsins og einbeitir sér að þáttastjórnun og utanaðkomandi verkefnum. Gísli Freyr Valdórsson snýr aftur í blaðamennsku.

Stefán Einar Stefánsson og Gísli Freyr Valdórsson.
Stefán Einar Stefánsson og Gísli Freyr Valdórsson.
Auglýsing

Stefán Einar Stef­áns­son, sem hefur verið frétta­stjóri við­skipta­deildar á Morg­un­blað­inu frá því í sept­em­ber 2018, hefur látið af því starfi. Þess í stað mun hann sinna verk­efnum utan fjöl­miðla og halda áfram þátta­stjórnun í vef­þátt­unum Dag­málum á mbl.­is. Stefán Einar hefur und­an­farin ár flutt inn kampa­vín auk þess sem hann á hlut í bóka­út­gáfu ásamt eig­in­konu sinni og vina­hjón­unum Rakel Lúð­víks­dóttur og Gísla Frey Val­dórs­syn­i. 

Á vef mbl.is í dag kemur fram að Gísli Freyr taki við sem nýr frétta­stjóri við­skipta­deildar á Morg­un­blað­inu og að hann hefji störf í dag. Gísli Freyr hefur áður starfað sem blaða­maður á Við­skipta­blað­inu um tíma en hætti til að ger­ast aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur þegar hún varð inn­an­rík­is­ráð­herra 2013. Gísli Freyr hætti end­an­lega í því starfi í nóv­em­ber 2014 eftir að hafa játað að hafa lekið trún­­að­­ar­­upp­­lýs­ingum um hæl­­is­­leit­anda úr inn­­an­­rík­­is­ráðu­­neyt­inu til fjöl­miðla ári áður. Fyrir það fékk Gísli Freyr átta mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm. 

Frá 2017 hefur hann starfað hjá KOM almanna­tengslum sem ráð­gjafi, verið rit­stjóri tíma­rits­ins Þjóð­mála og haft umsjón með hlað­varps­þætti sam­nefndum tíma­rit­in­u. Gísli Freyr tók við rit­stjórn Þjóð­mála árið 2017 þegar fyrr­ver­andi rit­stjóri þess, Óli Björn Kára­son, sett­ist á þing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Í frétt mbl.is segir að fram að kosn­­ing­um verði Dag­­mál með „um­fangs­­mikla um­­fjöll­un um fjölda sveit­­ar­­fé­laga og flest­ir þeirra þátta verða und­ir sam­eig­in­­legri stjórn Stef­áns Ein­­ars og Andr­é­s­ar Magn­ús­­son­­ar, líkt og fyr­ir alþing­is­­kosn­­ing­ar í fyrra.“

Eig­endur með tengsl við sjáv­ar­út­veg og stjórn­mál

Rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins eru Davíð Odds­son og Har­aldur Johann­es­sen sem hafa haldið um stjórn­ar­taumanna frá haustið 2009. Blaðið er í eigu útgáfu­fé­lags­ins Árvak­urs sem heldur einnig úti mbl.is og útvarps­stöð­inni K100. 

Auglýsing
Stærsti eig­and­i Árvak­urs er Guð­­­björg Matt­h­í­a­s­dóttir og börn henn­­­ar, í gegnum félögin Hlyn A og Ísfé­lag Vest­­­manna­eyja. Sam­an­lagt á sá hópur 25,5 pró­­­sent hlut. Næst stærsti eig­and­inn eru Íslenskar Sjá­v­­­­ar­af­­­urð­ir, í eigu Kaup­­­fé­lags Skag­­­firð­inga, með 19,4 pró­­­sent eign­­­ar­hlut. Þorri eig­enda­hóps­ins er með rík tengsl við íslenskan sjáv­ar­út­veg eða Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Á meðal ann­arra eig­enda er Eyþór Arn­alds, odd­viti flokks­ins í Reykja­vík. Stjórn­ar­for­maður Árvak­urs er Sig­ur­björn Magn­ús­son, faðir Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, vís­inda-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Íslands. Á meðal ann­arra stjórn­ar­manna í Árvakri er Ásdís Halla Braga­dótt­ir, sem tíma­bundið gegnir stöðu ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyti Áslaugar Örnu.

Í jan­úar sögð­ust alls 19,1 pró­­sent lands­­manna lesa blað­ið, en vert er að taka það fram að Morg­un­­­blaðið er frí­­­blað einu sinni í viku, á fimmt­u­­­dög­um, þegar það er í svo­­­kall­aðri aldreif­ingu. Þá fær fjöldi manns sem er ekki áskrif­andi blaðið óum­beðið inn um lúg­una hjá sér. Lestur Morg­un­­­blaðs­ins hjá öllum ald­­­ur­s­hópum hefur rúm­­lega helm­ing­­­ast frá vor­inu 2009, þegar hann var 40 pró­­­sent.

Sam­­drátt­­ur­inn er mestur í ald­­­ur­s­hópnum 18-49 ára. Þar segj­­­ast tíu pró­­­sent lands­­­manna lesa Morg­un­­­blað­ið. í byrjun árs 2009, þegar nýir eig­endur komu að rekstri blaðs­ins sem réðu svo núver­andi rit­­­stjóra var Morg­un­­­blaðið lesið af þriðj­ungi allra lands­­­manna á þessum aldri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent