„Stelpugengi“ stýrir neðanjarðarfjölmiðli í stríðshrjáðu Sýrlandi

kjarninn_syrland_vef.jpg
Auglýsing

Enab Baladi er neð­an­jarð­ar­fjöl­mið­ill í Sýr­landi sem var stofn­aður þegar stríðið hófst þar í landi. Erlendum fjöl­miðlum og hjálp­ar­starfs­mönnum hef­ur að mestu verið bannað að vera í Sýr­landi og eiga á hættu að vera teknir af lífi. Alþjóð­legir fjöl­miðlar hafa því flestir haldið frétta­rit­urum sínum á landa­mær­unum við Sýr­land. Það hefur því verið mjög erfitt að fá sannar fréttir af því sem ger­ist í borg­ara­stríð­inu í Sýr­landi.

Til að bregð­ast við þessu ákvað hópur aðgerða­sinna sem hafði kynnst í mót­mælum gegn Bashar al-Assad, for­seta Sýr­lands, að stofna neð­an­jarð­ar­blað til þess að halda Sýr­lend­ingum og öðrum upp­lýstum um stríðs­glæpi allra þeirra sem berj­ast í stríð­inu.

Nú er svo komið að um tutt­ugu manna hóp­ur ­segir frá því sem ger­ist á stríðs­hrjáðum svæðum víðs vegar um land­ið. Allir skrifa undir dul­nefnum og nota hug­búnað til að fela IP-­tölur tölvanna.

Auglýsing

Meiri­hluti starfs­manna blaðs­ins eru kon­ur, sem er mjög sér­stakt, enda nán­ast engar konur í rík­is­stjórn eða í stjórnum upp­reisn­ar­hópa. Íslamska ríkið stjórnar hluta lands­ins og þar eru rétt­indi kvenna mjög fótum troð­in. Það er þó ekki eins­dæmi því konur hafa verið mjög áber­andi í litlum útgáfum sem þessum. Að sögn eins karl­kyns starfs­manna blaðs­ins, Jawad Sharbaji, eiga konur auð­veld­ari aðgang að heim­ilum fólks og auð­veld­ara með að ferð­ast um landið en karl­ar.

Yfir 370 þús­und manns fylgj­ast nú með Enab Baladi á Face­book og búið er að koma upp vef­síðu sem fær 200 þús­und heim­sóknir á mán­uði. Til að byrja með þurftu konur að dreifa blað­inu í skjóli nætur til þess að koma því á fram­færi. Það er raunar ennþá gert, blaðið er prentað í sjö þús­und ein­tökum tvisvar í mán­uði. Prent­unin fer fram í Tyrk­landi þar sem meiri­hluta blað­anna er nú dreift, en um tvö þús­und ein­tökum er smyglað inn í Sýr­land.





Þrír rit­stjórar myrtir



Kholoud Waleed, einn stofn­enda fjöl­mið­ils­ins og frétta­rit­stjóri, hefur nú tjáð sig um útgáf­una í fjöl­miðlum undir dul­nefni. Sjá má mynd­band með við­tali við hana hér að neð­an, og hún er í við­tali í nýj­ustu útgáfu tíma­rits­ins Elle. „Við erum stelpu­geng­ið. Assad myndi drepa okk­ur, en hann finnur okkur ekki,“ segir hún meðal ann­ars í við­tali við blað­ið.

Hún flúði frá heima­borg sinni Dara­yya sum­arið 2012, þegar ein­hver verstu fjöldamorð stríðs­ins fóru þar fram. Fregnir herma að útgöngu­leiðum úr borg­inni hafi verið lokað áður en eld­flauga­árásir hófust þar. Í kjöl­farið hafi svo her­menn gengið hús úr húsi og skotið fólk til bana.

Waleed flúði þá ásamt fjöl­skyldu sinni, og það var í eina skiptið sem útgáfa af Enab Baladi kom ekki út. Um leið og fjöldamorð­unum var lokið fór starfs­fólk blaðs­ins að segja frá því sem gerst hafð­i. En eftir því sem blaðið hefur vakið meiri athygli varð hættan meiri. Þrír karlar sem höfðu verið rit­stjórar á blað­inu voru myrt­ir. Nokkrar konur voru teknar fastar og sak­aðar um að vinna fyrir blað­ið, en alls hafa átta starfs­menn verið hand­teknir og pynt­að­ir. Þá ákvað Waleed að flýja burt úr land­inu, og nú er hún í flótta­manna­búðum í Tyrk­landi, þaðan sem hún rit­stýrir fréttum blað­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None