Stíf fundahöld vegna Grikklands - evruríkin vilja „alvöru og trúverðugar“ tillögur

h_52031600-1.jpg
Auglýsing

Grikkir þurfa að koma með „al­vöru og trú­verð­ug­ar“ til­lögur á neyð­ar­fund hjá leið­togum Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna í dag ef þeir vilja halda áfram í mynt­sam­starf­in­u. Kansl­ari Þýska­lands, Ang­ela Merkel, og for­seti Frakk­lands, Francois Hollande, hafa sent frá sér frétta­til­kynn­ingar þar sem þetta kemur fram.

Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra og Euclid Tsaka­lotos nýr fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands eru nú komn­ir til Brus­sel, en fundur fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna, evru­hóps­ins svo­kall­aða, hefst klukkan 11 á íslenskum tíma. Sá fundur er und­ir­bún­ingur fyrir fund Evr­ópu­sam­bands­leið­tog­anna, sem hefst klukkan fjögur að íslenskum tíma.

Vonir manna um að stórra frétta verði að vænta eftir fund­ina í dag hafa dvín­að. Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði í Evr­ópu­þing­inu í morgun að lausn á mál­inu kæmi ekki fram á einni nóttu. „Það sem við gerum í dag er að tala saman og koma reglu á hlut­ina,“ sagði hann. Hann sagði Grikki verða að koma með til­lög­ur, það hefðu verið þeir sem gengu burt frá samn­inga­við­ræð­um.

Auglýsing

Gert er ráð fyrir því að Tsiprsas og Tsaka­lotos muni kynna nýjar til­lögur að lausn á vand­an­um, en meðal þess sem búist er við að komi þar fram sé að allt að 30 pró­sent skulda Grikkja verði afskrif­að­ar. Til­lög­urnar eru taldar líkar til­lögum lán­ar­drottn­anna sem var hafnað í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni á sunnu­dag.

Flestir grein­endur telja enn að lík­leg­ast sé að Grikkir fari úr evru­sam­starf­inu. Mats­fyr­ir­tækið Fitch gerir ekki einu sinni ráð fyrir því að sam­komu­lag náist fyrir 20. júlí næst­kom­andi, en þá þurfa Grikkir að standa skil á 3,5 millj­arða greiðslu til Seðla­banka Evr­ópu. Ef Grikkir ná ekki að greiða þá greiðslu er talið lík­legt að bank­inn loki á alla neyð­ar­að­stoð og lýsi grísku bank­anna gjald­þrota.

Grískir bankar eru áfram lok­aðir í dag og á morg­un, en ekki er víst að hægt verði að opna á fimmtu­dag þrátt fyrir áætl­anir þar um. Lausafé er af mjög skornum skammti og Seðla­banki Evr­ópu ákvað í gær að hækka ekki neyð­ar­að­stoð sína við grísku bank­ana.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None