Stjórn Eflingar: Ákvörðun Granda bæði „taktlaus og siðlaus“

sjavarutvegur.jpg
Auglýsing

„Sú ákvörðun stjórnar HB Granda á síð­asta aðal­fundi að hækka stjórn­ar­laun fyr­ir­tæk­is­ins um 33% kemur eins og blaut tuska framan í starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins og launa­fólk í þeim kjara­við­ræðum sem nú standa yfir þar sem Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa boðið launa­fólki tíunda hluta þessa fjár­hæðar í launa­hækk­un,“ segir í ályktun frá stjórn stétt­ar­fé­lags­ins Efl­ing­ar.

Í til­kynn­ing­unni segir að ákvörðun aðal­fundar HB Granda lýsi „bæði takt­leysi og sið­leysi gagn­vart fólk­inu á gólf­inu sem hefur byggt upp HB Granda með vinnu sinni og auk­inni fram­leiðslu ár eftir ár.“ Er ákvörð­unin sögð vera algjör­lega „óboð­leg“.

Efl­ing for­dæmir einnig ákvörðun stjórnar HB Granda fyrir þær arð­greiðslur sem fyr­ir­tækið hefur ákveðið að færa eig­endum sínum á síð­asta aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins. „Í stað þess að fyr­ir­tækið deili ávinn­ingnum af upp­bygg­ingu og arð­semi af rekstri með starfs­mönnum sín­um, hafa eig­endur ákveðið að taka allan arð­inn sem deilt er út í eigin vasa,“ segir í til­kynn­ing­u Efl­ing­ar.

Auglýsing

Enn­fremur segir að með þess­ari ákvörðun hafi ­stjórn HB Granda sett alla fram­vindu kjara­samn­inga­við­ræðna í upp­nám. „Efl­ing-­stétt­ar­fé­lag krefst þess að stjórn HB Granda verði þegar í stað kölluð saman til að aft­ur­kalla þessar ákvarð­anir og taka nýjar sem taka mið af hags­munum starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins og þörfum sam­fé­lags­ins sem búum í,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Aðal­fundur HB Granda ákvað fyrir skemmstu að hækka laun stjórn­ar­manna hjá félag­inu um 33,3 pró­sent. Stjórn­ar­menn í félag­inu fá nú 200 þús­und krónur greiddar á mán­uði í stað 150 þús­und króna og stjórn­ar­for­mað­ur­inn tvö­falda þá upp­hæð. HB Grandi greiddi hlut­höfum sínum 2,7 millj­arða króna í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs.

Ákvörð­unin hefur verið harð­lega gagn­rýnd en Krist­ján Lofts­son, stjórn­ar­for­maður HB Granda, sagði í sam­tali við RÚV í gær að ekki komi til greina að draga ákvörðun um aðgreiðslu og þriðj­ungs­hækkun á þóknun stjórn­ar­manna til baka. „Ég held að það sé ekk­ert óhóf í þessu að mínu mati, og ef þú færir yfir list­ann í þessu í Kaup­höll­inni þá held ég að Grandi sé í einu af neðstu sæt­un­um,“ sagði Krist­ján.

Deilur í algleym­ingi



Kjara­deilur á vinnu­mark­aði eru í algleym­ingi um þessar mund­ir. Félags­menn BHM eru í verk­falls­að­gerð­um, og við blasa verk­falls­að­gerðir hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Starfs­greina­sam­bandið (SGS) er með þær í und­ir­bún­ingi, og það sama má segja um fleiri stétt­ar­fé­lög. Kröf­urnar sem uppi eru, og hafa verið nefnd­ar, eru óra­fjarri þeim sem Sam­tök atvinnu­lífs­ins telja sig geta mætt.

Eins og Kjarn­inn hefur bent á áður þá er rík krafa um það hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni að lægstu laun verði hækkuð mynd­ar­lega, og hafa samn­ingar rík­is­ins við lækna, þar sem samið var um meira en 20 pró­sent hækkun launa, haft mikil áhrif á kröfu­gerð stétt­ar­fé­laga og and­ann í samn­inga­við­ræð­unum yfir höf­uð. Þetta stað­festa við­mæl­endur beggja megin borðs­ins. Hjá SGS hefur krafan verið sú að lægstu laun verði hækkuð í 300 þús­und en þau eru 214 þús­und í dag. Hækk­unin á að koma fram á þremur árum, en meðal mán­að­ar­laun þessa hóps hafa verið sögð meira en 400 þús­und krónur þegar allt er talið.

Flóa­banda­lagið hefur sett fram kröfur um 35 þús­und króna hækkun lægstu byrj­un­ar­launa. Auk þess sem þau verði leið­rétt miðað við hækk­anir hjá öðrum umfram for­sendur síð­ustu kjara­samn­inga. For­maður Efl­ingar og tals­maður Flóa­banda­lags­ins, Sig­urður Bessa­son, hefur látið hafa eftir sér að Flóa­banda­lagið geri kröfu um þessa hækkun á einu ári, ein­fald­lega vegna þess að þau treysti ekki stjórn­völdum og því sé ekki hægt að semja til lengri tíma. Þegar allt er talið telja Sam­tök atvinnu­lífs­inss að kröfur Flóa­banda­lags­ins feli í sér­ 17,5-22% hækkun launa­taxta, og þeim sé ekki hægt að mæta.

Hjá Verzl­un­ar­manna­fé­lagi Reykja­víkur (VR) er uppi krafa um 50 þús­und króna launa­þró­un­ar­trygg­ingu. Það þýðir um 20% hækkun þeirra sem lægstu laun hafa. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er horft til þess að semja til tólf mán­aða. Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa lýst yfir­ á­hyggj­um, sem snúa því að krónu­tölu­hækk­anir taxta, sem samið yrði um, fari upp­ allan launa­skal­ann, og þannig geti þeir sem hæstu launin hafa í reynd fengið meiri krónu­tölu­hækkun en aðr­ir. Þessu hafa for­svar­menn VR hafn­að, og tala fyrir nauð­syn þess að hækka launin hjá þeim sem minnst hafa. Ein­blína á þann hóp, enda séu félags­menn VR upp til hópa ekki hluti af hálauna­stéttum í land­inu.

Iðn­að­ar­menn og stétt­ar­fé­lög þeirra hafa gert almenna kröfu um tutt­ugu pró­sent laun­hækk­un. Þar af um um 100 þús­und króna hækkun lægstu taxta. Kröfur hafa verið uppi um enn meiri hækk­anir hjá Mat­vís, félagi iðn­að­ar­manna í mat­væla- og veit­inga­geir­an­um, sem eru með lægri taxta en hinir hópar iðn­að­ar­manna eins og mál standa nú. Líkt og hjá hjá Flóa­banda­lag­inu og VR, hefur verið horft til þess að semja aðeins til tólf mán­aða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None