Stjórnstöð ferðamála kostar 140 milljónir á ári - Framkvæmdastjórinn með tvær milljónir í laun

stjornstod_ferdamala.jpg
Auglýsing

Lagt er upp með að Stjórn­stöð ferða­mála hafi 140 millj­ónir króna til ráð­stöf­unar á ári og mun kostn­aður vegna rekstrar hennar skipt­ast jafnt milli rík­is­sjóðs og ferða­þjón­ust­unn­ar. Hörður Þór­halls­son, sem ráð­inn var fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðv­ar­inn­ar, mun starfa í fyrsta eftir tíma­bundnum ráð­gjafa­samn­ingi á meðan verið er að móta starf­sem­ina. Heild­ar­kostn­aður vegna samn­ings­ins er áætl­aður um 1.950 þús­und krónur á mán­uði. Þetta kemur fram í svörum atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um ætl­aðan kostnað við rekstur Stjórn­stöðvar ferða­mála. ­Starf fram­kvæmda­stjór­ans var ekki aug­lýst.

Kjarn­inn spurði einnig hvort til stæði að ráða fleira starfs­fólk til Starfs­stöðv­ar­inn­ar. Í svari ráðu­neyt­is­ins seg­ir: "Fram­kvæmda­stjóri mun skipu­leggja vinn­una í sam­ræmi við áherslur hverju sinni og þá fjár­muni sem Stjórn­stöðin hefur til umráða. Samn­ing­ur­inn verður gerður í sam­ræmi við lög um opin­ber inn­kaup."

Til­kynnt um stofnun Stjórn­stöðvar í Hörpu í gær



Til­kynnt var um stofnun Stjórn­stöðvar ferða­mála með við­hafn­ar­kynn­ingu í Hörpu í gær. Hlut­verk Stjórn­stöðv­ar­inn­ar verður að sam­hæfa aðgerðir og útfæra leiðir í sam­vinnu við opin­berar stofn­anir og hags­muna­að­ila í ferða­þjón­ustu. Stjórn­stöð­inni er ætlað að starfa í fimm ár eða til árs­loka 2020.

Hún er sett á lagg­irnar á grund­velli ­sam­komu­lags milli rík­i­s­tjórn­ar­inn­ar, Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Sam­taka ferða­þjón­ust­unnar í dag. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra skip­aði í gær tíu full­trúa í stjórn Stjórn­stöðv­ar­inn­ar. Fjórir ráð­herrar eiga þar sæti, fjórir full­trúar frá Sam­tökum ferða­þjonust­unnar og tveir full­trúar Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga. Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra er for­maður Stjórn­stöðv­ar­inn­ar.

Auglýsing

Þá var til­kynnt um að Hörður Þór­halls­son hefði verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar ferða­mála. Hann mun hefja störf 1. nóv­em­ber næst­kom­andi. Starf hans var ekki aug­lýst.

Hörð­ur­ er með masters­gráðu í rekstr­ar­verk­fræði frá háskól­anum Karls­ruhe í Þýska­landi. Hann hóf starfs­feril sinn árið 1996 sem rekstr­ar­ráð­gjafi hjá VSÓ Ráð­gjöf og var árið 2000 ráð­inn til lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Delta, sem síðar varð Act­a­v­is. Þar leiddi hann m.a. upp­bygg­ingu Act­a­vís í Asíu, Eyja­álfu, Afr­íku og á Mið­aust­ur­lönd­um. Síð­ast gegndi hann stöðu fram­kvæmda­stjóra Act­a­vis yfir Asíu, Eyja­álfu og Afr­íku með starfs­stöð og búsetu í Singapúr.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None