Stjörnustríðsmyndirnar fara á netið um helgina

Star_Wars_Logo.svg_.jpg
Auglýsing

Senn verður bið ­fjöl­margra aðdá­enda Stjörnu­stríðs­mynd­anna eftir að þær verði aðgengi­legar á net­inu á enda, því allar sex Star Wars kvik­mynd­irnar verða í boði til nið­ur­hals á net­inu frá og með föstu­deg­in­um. Frétta­mið­ill­inn Business Insider greinir frá tíð­ind­unum.

Star Wars bíó­mynd­irn­ar, frá „The Phantom Menace“ til „Re­turn of the Jedi“ verða aðgengi­legar til nið­ur­hals á nokkrum staf­rænum afþrey­inga­veit­um, þeirra á meðal eru iTu­nes, Google Play, Amazon, Vudu og PlaySta­tion Store.

Sam­kvæmt heim­ildum USA Today mun hver mynd kosta 20 Banda­ríkja­dali, en svo er hægt að kaupa alla ser­í­una á 100 dali, eða um 13.600 íslenskar krón­ur. Með hverri mynd fylgir mikið auka­efni, áður óbirtar sen­ur, mis­heppn­aðar tökur og sögur af töku­stað.

Auglýsing

Dis­ney, sem keypti kvik­mynda­fyr­ir­tækið Lucas­film af George Lucas árið 2012 fyrir rúma fjóra millj­arða Banda­ríkja­dala og þar með rétt­inn að Star Wars og Indi­ana Jones vöru­merkj­un­um, ákvað að halda kvik­mynda­bálknum frá streymi­veitum á borð við Net­flix og bjóða þess í stað upp á nið­ur­hal í bestu mögu­legum gæðum með fjöl­breyttu auka­efni.

Til að hita upp fyrir staf­ræna útgáfu Stjörnu­stríðs­mynd­anna var útbúin stikla. Hana má berja augum hér að neð­an.

Eins og flestir aðdá­endur Star Wars mynd­anna vita mæta­vel, er von á að sjö­unda kvik­myndin í vin­sæl­ustu kvik­mynda­röð sög­unnar þann 18. des­em­ber næst­kom­andi. Myndin hefur hlotið nafnið „The Force Awa­kens“ og ger­ist eftir „Re­turn of the Jed­i,“ sem frum­sýnd var árið 1983. Á þessu ári verða liðin tíu ár frá því að síð­asta Star Wars mynd var frum­sýnd, „Revenge of the Sit­h,“ sem fékk afar mis­jafnar mót­tökur gagn­rýnenda sem og tvær Stjörnu­stríðs­mynd­irnar á undan henni, það er „The Phantom Menace“ og „Attack of the Clones.“

Sjá stiklu úr ­fyrstu Star Wars mynd­inni úr smiðju Dis­ney hér að neð­an, en hún lofar góðu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None