Stórþörungaverksmiðja í Stykkishólmi - 15 ný heilsársstörf

Undirskrift_Snaefellsnes_og_Breidafjordur.jpg
Auglýsing
Stykk­is­hólms­bær, írska fyr­ir­tækið Marigot Ltd. sem á Íslenska kalk­þör­unga­fé­lagið á Bíldu­dal, og Matís ohf. hafa und­ir­ritað sam­komu­lag sem hefur að mark­miði aukið sam­starf í tengslum við nýtt verk­efni sem nú er í und­ir­bún­ingi, sem er ný stór­þör­unga­verk­smiðja í Stykk­is­hólmi. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu aðstand­enda verk­efn­is­ins. Það lýtur að frek­ari nýt­ingu stór­þör­unga við Breiða­fjörð í nýju iðn­fyr­ir­tæki, Deltagen Iceland ehf., sem áætlar að reisa verk­smiðju í Stykk­is­hólmi. Gangi þær áætl­anir eftir má gera ráð fyrir að starf­semi Deltagen Iceland með fimmtán nýjum heils­árs­störfum hefj­ist á síð­ari hluta árs 2016, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Eins og greint var frá í síð­ustu viku hefur Marigot keypt 60% hlut í vinnslu­hluta starf­semi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Mar­inox ehf., þar sem Matís var meðal hlut­hafa. Um er að ræða þann hluta fyr­ir­tæk­is­ins sem heldur utan um rann­sóknir og vinnslu verð­mætra hrá­efna úr haf­inu, þang og þara.

„Við fögnum þessu spenn­andi sam­komu­lagi sem hefur að mark­miði að skapa fleiri störf og auka fjöl­breytni atvinnu­lífs­ins hér á svæð­inu. Miðað við áætl­anir myndi verk­smiðjan sjálf skapa 15 árs­verk undir fullum afköstum auk starfa við þang­slátt og söfn­un, þró­un­ar- og tækni­vinnu auk ann­arra afleiddra starfa sem eru okkur í Stykk­is­hólmi mik­il­væg búbót í frek­ari atvinnu­upp­bygg­ingu. Bæj­ar­yf­ir­völd eru núna að vinna í nauð­syn­legum skipu­lags­málum sem snúa að verk­efn­inu, sem við vonum að gangi eft­ir. Fyr­ir­hug­aður iðn­aður þyrfti m.a. að hafa beinan aðgang að góðri hafn­ar­að­stöðu fyrir all­stór flutn­inga­skip og til að landa þangi úr flutn­inga­prömmum og skipum sem flytja þang frá sláttu­prömmum á Breiða­firði. Við munum skoða þetta verk­efni með stjórn­völd­um,“ segir Sturla Böðv­ars­son, bæj­ar­stjóri í Stykk­is­hólmi, í frétta­til­kynn­ing­unni.

Frið­rik Frið­riks­son, stjórn­ar­for­maður Mat­ís, fagnar sam­komu­lag­inu sem náðst hefur og seg­ist bjart­sýnn á að ný tæki­færi skap­ist. „Matís hefur í gegnum tíð­ina skapað sér öfl­ugt orð­spor á vett­vangi rann­sókna og nýsköp­unar í mat­væla­fram­leiðslu og líf­tækni. Aðkoma okkar að starf­semi Deltagen Iceland verður í gegnum starf vís­inda­manna Matís þar sem mikil þekk­ing er til staðar á van­nýttum afurðum á borð við þang og þara. Með því að styðja við nýsköpun starfs­manna Matís með þessum hætti erum við að stuðla að nauð­syn­legum hvata til að þróa hug­mynd­irnar áfram og búa til verð­mætar vörur og efla þannig íslenskt atvinnu­líf. Það er í raun eitt meg­in­hlut­verk Mat­ís,“ segir Frið­rik Frið­riks­son, stjórn­ar­for­maður Mat­ís.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None