Stóru lífeyrissjóðirnir hækka vexti á íbúðalánum – Eru enn lægri en hjá bönkunum

Stærstu lífeyrissjóðirnir sem lána óverðtryggt til sjóðsfélaga sinna hafa tilkynnt um vaxtahækkanir. Þær eru þó hóflegri en hækkanir sem flestir bankar réðust í og taka ekki gildi fyrr en á næsta ári.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, tilkynnti um vaxtahækkun í síðustu viku.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, tilkynnti um vaxtahækkun í síðustu viku.
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna ákvað í síð­ustu viku að hækka vexti á óverð­tryggðum íbúða­lánum sínum um 0,28 pró­sentu­stig í 4,13 pró­sent. Um er að ræða lán fyrir 70 pró­sent af kaup­verði sem að hámarki mega vera 75 millj­ónir króna. Breyt­ingin tekur hins vegar ekki gildi fyrr en 1. febr­ú­ar. 

Gildi líf­eyr­is­sjóður greindi svo frá því á fimmtu­dag að stjórn sjóðs­ins hefði einnig ákveðið að hækka óverð­tryggða breyti­lega vexti sjóðs­fé­laga­lána sinna en um 0,25 pró­sent. Breyt­ingin tekur gildi 17. jan­úar og eftir það verða vextir óverð­tryggðra grunn­lána fyrir 65 pró­sent af kaup­verði 4,05 pró­sent en við­bót­ar­lána fyrir næstu tíu pró­sentu­stigum kaup­verðs 4,80 pró­sent. Vextir fyrir 75 pró­sent lán verða eftir breyt­ing­una 4,15 pró­sent.  

Til­efni þess­ara hækk­ana er síð­asta stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands í nóv­em­ber, þegar þeir vextir fóru úr 1,5 í tvö pró­sentu­stig. Stýri­vextir hafa alls hækkað um 1,25 pró­sentu­stig frá því í maí. 

Bank­arnir hafa sópað til sín lánum

Við­skipta­bank­arnir þrír til­kynntu allir um hækkun á óverð­tryggðum vöxtum sínum fyrir síð­ustu mán­aða­mót og þær vaxta­hækk­anir tóku allar gildi skömmu síð­ar. Því eru við­skipta­vinir Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka að greiða vaxta­hækk­un­ina fyrr en við­skipta­vinir áður­nefndra líf­eyr­is­sjóða, sem eru tveir af þremur stærstu sjóðum lands­ins. 

­

Auglýsing
Arion banki og Lands­­bank­inn hækk­­uðu breyt­i­­lega vexti óverð­­tryggðra hús­næð­is­lán um 0,4 og 0,35 pró­­sent­u­­stig, upp í 4,29 og 4,20 pró­sent.

Íslands­banki var síð­astur stóru bank­anna til að kynna hækk­un, alls um 0,2 pró­sentu­stig, og óverð­tryggðir vextir á sam­bæri­legum lánum við aðra stóra lán­tak­endur hjá bank­anum eru nú 4,15 pró­­sent hjá Íslands­­­banka.

Hlut­­­deild banka í útistand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­­sent en var 55 pró­­­sent í byrjun árs 2020. Á sama tíma hefur vaxta­munur bank­anna þriggja: Lands­­bank­ans, Arion banka og Íslands­­­banka hald­ist svip­aður en hagn­aður þeirra stór­auk­ist. Þeir högn­uð­ust sam­tals um 60 millj­­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021, sem er meira en þeir hafa hagn­­ast innan árs frá árinu 2015.

Óverð­tryggðu lánin taka yfir

Eftir skarpa stýri­vaxta­lækkun Seðla­bank­ans í fyrra­vor, sem var við­bragð við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum þá ákvað bank­inn líka að afnema tíma­bundið sveiflu­jöfn­un­ar­auka á eigið fé íslensku bank­anna til að auka útlána­getu þeirra. 

Fyrir vikið urðu óverð­tryggð lán mun hag­stæð­ari en verð­tryggð og eðl­is­breyt­ing varð á lán­tökum lands­manna. Óverð­tryggðu lánin er enn mun hag­stæð­ari en þau verð­tryggðu í ljósi þess að verð­bólga mælist 4,8 pró­sent um þessar mund­ir, en ódýr­ustu nafn­vextir á slíkum lánum eru nú vel yfir sex pró­sent. 

Hlut­­­fall óverð­­­tryggðra lána af öllum íbúða­lánum var 27,5 pró­­­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 pró­­­sent. Þau bíta lán­tak­endur strax í budd­una þegar vextir hækka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent