Stundvísi Icelandair og WOW air versnar - Örtröð í Leifsstöð

WOW-Air-Airbus-A320-Heisterkamp.jpg
Auglýsing

Stund­vísi flug­fé­lag­anna Icelandair og WOW air versn­aði í júní sam­an­borið við maí, sam­kvæmt athugun Dohop flug­ferða-­leit­ar­vél­ar­innar. Dohop hefur und­an­farna mán­uði tekið saman tölur um stund­vísi þeirra flug­fé­laga sem fljúga mest frá Kefla­vík. Í júní var easyJet stund­vís­ast við brott­farir en Air­Berlin var stund­vís­ast við kom­ur. Brott­förum og komum flug­véla WOW air seink­aði í nærri 40 ­pró­sent til­vika, að með­al­tali um 32 mín­útur í hvert skipti.

Flug­fé­lag Hlut­fall brott­fara á réttum tíma Með­al­töf í mín­útum Hlut­fall komu á réttum tíma Með­al­töf í mín­útum
Icelandair 73% (89%) 12,09 (7,98) 82% (88%) 6,72 (9,44)
WOW air 62% (81%) 31,76 (9,65) 62% (74%) 31,73 (15,179)
easyJet 74% (74%) 8,29 (16,24) 88% (85%) 3,67 (11,56)
Air­Berlin 68% 11,38 94% 2,26

 

Þegar töl­urnar í júní eru bornar saman við stund­vísi flug­fé­lag­anna í maí sést að hún versnar tölu­vert hjá bæði Icelandair og WOW air. Í töfl­unni hér að ofan eru tölur fyrir maí í sviga en nýj­ustu töl­urn­ar, fyrir júní, standa utan sviga. Hlut­fall brott­fara á réttum tíma hjá Icelandair dróst saman úr 89 pró­sentum í 73 pró­sent. Með­al­töf í mín­útum jókst úr tæpum átta mín­útum í rúm­lega tólf mín­út­ur. Hlut­fall komu­tíma versn­aði einnig milli mán­aða hjá Icelanda­ir.

Auglýsing


Með­al­töf hjá WOW air jókst mikið bæði við brott­farir og kom­ur. Töfin var nærri 32 mín­útur í hverju flugi WOW air í júní. Hlut­fall brott­fara og komu á réttum tíma í júní var 62 pró­sent í júní og lækk­aði frá því að vera 81 pró­sent og 74 pró­sent í maí. Í til­kynn­ingu frá DoHop segir að stórt hlut­fall seink­ana flug­fé­lags­ins hafi verið í fyrstu vik­unni í júní, þegar vél­ar­bilun og þrumu­veður olli miklum töf­um.



Stund­vísi easyJet breytt­ist minna milli mán­aða en hjá íslensku flug­fé­lög­un­um. Með­al­töf í mín­útum lækk­aði við brott­för og var um 8,3 mín­útur í júní. Með­al­töf við komu var tæpar fjórar mín­útur í júní.



Air­Berlin mælist í fyrsta sinn í athugun DoHop en flug­fé­lagið fór yfir 50 áætl­un­ar­flug til og frá Kefla­vík í mán­uð­in­um. Með­al­töf á flug­ferðum félags­ins var aðeins 2,3 mín­útur við komu en 11,4 mín­útur við brott­för.

Örtröð í flug­stöð­inni

Ýmsar ástæður geta legið fyrir töfum á milli­landa­flug­ferðum flug­fé­lag­anna. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hefur það meðal ann­ars áhrif á stund­vísi íslensku flug­fé­lag­anna að bæði fara þau flestar ferðir allra flug­fé­laga um Kefla­vík­ur­flug­völl­inn og flestar ferð­anna eru á mestu álags­tímum sól­ar­hrings­ins. EasyJet, og fleiri af þeim erlendu flug­fé­lögum nýlega hafa vanið komu sína til­ Kefla­vík­ur­fug­vall­ar, hafa fengið úthlut­aða tíma sem margir eru utan álags­tíma.



Gríð­ar­legt álag á Kefla­vík­ur­flug­velli hefur verið nokkuð til umfjöll­unar í sum­ar. Nærri 30 pró­sent fjölgun ferða­manna það sem af er ári, sam­an­borið við fyrstu sex mán­uði síð­asta árs, hefur aukið álag á flug­vell­inum mik­ið. Álags­tímar eru á morgn­ana og einkum á fimmtu­dögum og sunnu­dögum en að með­al­tali fara um 22 þús­und manns um flugs­stöð Leifs Eiríks­sonar á sunnu­dögum í júlí. Það hefur komið fyrir á síð­ustu vikum að örtröð mynd­ast við leit­ar­hliðið og flug­ferðum hefur verið seinkað vegna þessa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None