Stýrivextir hækkaðir um 0,5 prósentur

15367564864-a2c806a43e-z.jpg
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur hækk­að vexti bank­ans um 0,5 pró­sent­ur. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því 5 pró­sent. Ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar var birt í morg­un. Hún er í takt við spár grein­ing­ar­að­ila en grein­ing­ar­deildir bæði Arion banka og íslands­banka spáðu 50 punkta hækkun vaxta.

Í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar segir að þótt verð­bólga sé enn lítil hafi verð­bólgu­horfur versnað veru­lega og horfur á að verð­bólga verði meiri en bank­inn spáði í maí. Það megi rekja til umsamdra launa­hækk­ana. Þá feli aðgerðir stjórn­valda sem eiga að liðka fyrir kjara­samn­ingum aukin rík­is­út­gjöld og slökun í aðhaldi í rík­is­fjár­mál­um.

Í nið­ur­lagi til­kynn­ing­ar­innar segir nefndin það virð­ast ein­sýnt að hækka þurfi vexti umtals­vert í ágúst og frekar á kom­andi miss­erum, eigi að tryggja stöðugt verð­lag til lengri tíma lit­ið.

Auglýsing

Til­kynn­ing pen­inga­stefnu­nefndar í heild:



Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bank­ans um 0,5 pró­sent­ur. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því 5%.



Sam­kvæmt nýbirtum þjóð­hags­reikn­ingum nam hag­vöxtur 2,9% á fyrsta fjórð­ungi árs­ins, neysla og fjár­fest­ing juk­ust um 6,4% og þjóð­ar­út­gjöld alls um tæp­lega 10%. Ásamt kröft­ugum bata á vinnu­mark­aði benda þessar tölur til að vöxtur efna­hags­um­svifa sé áþekkur maí­spá Seðla­bank­ans.



Þótt verð­bólga sé enn lítil hafa verð­bólgu­horfur versnað veru­lega miðað við síð­ustu spá Seðla­bank­ans og verð­bólgu­vænt­ingar hafa áfram hækk­að. Nú eru horfur á að verð­bólga verði meiri en bank­inn spáði í maí, sem rekja má til þess að þegar hefur verið samið um mun meiri launa­hækk­anir en gert var ráð fyrir í spá bank­ans.



Til þess að liðka fyrir kjara­samn­ingum hefur rík­is­stjórnin kynnt aðgerðir sem munu auka rík­is­út­gjöld og draga úr skatt­tekj­um. Aðgerð­irnar hafa enn sem komið er ekki verið fjár­magn­aðar og fela því að öðru óbreyttu í sér slökun á aðhaldi í rík­is­fjár­mál­um. Einnig hafa verið kynntar aðgerðir stjórn­valda er miða að því að búa í hag­inn fyrir losun fjár­magns­hafta. Sumar þeirra munu afla rík­is­sjóði tekna sem mik­il­vægt er að verði ráð­stafað þannig að það verði ekki til þess að auka enn frekar á spennu í þjóð­ar­bú­skapnum með því að virkja pen­inga­magn sem til þessa hefur verið óvirkt. Pen­inga­stefnu­nefndin mun fylgj­ast grannt með fram­vind­unni og grípa til við­eig­andi aðgerða til mót­vægis ef þörf kref­ur.



Í yfir­lýs­ingum nefnd­ar­innar und­an­farið hefur ítrekað verið bent á að miklar launa­hækk­anir og sterkur vöxtur eft­ir­spurnar gætu grafið undan nýfengnum verð­stöð­ug­leika og valdið því að hækka yrði vexti á ný. Horfur um þróun launa­kostn­að­ar, hækkun verð­bólgu­vænt­inga og vís­bend­ingar um öfl­ugan vöxt eft­ir­spurnar valda því að óhjá­kvæmi­legt er að bregð­ast nú þegar við versn­andi verð­bólgu­horfum þrátt fyrir að verð­bólga sé enn undir mark­miði. Enn fremur virð­ist ein­sýnt að hækka þurfi vexti umtals­vert í ágúst og frekar á kom­andi miss­erum eigi að tryggja stöðugt verð­lag til lengri tíma lit­ið.



Vextir Seðla­banka Íslands verða sam­kvæmt þessu sem hér seg­ir:

Daglán: 6,75%

7 daga veð­lán: 5,75%

7 daga bundin inn­lán: 5,00%

Við­skipta­reikn­ing­ar: 4,75%



 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None