Stýrivöxtum haldið óbreyttum

15367564864-a2c806a43e-z.jpg
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans hefur ákveðið að halda stýri­vöxtum óbreytt­um. Til­kynnt var um ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar rétt fyrir klukkan níu í morg­un­. ­Meg­in­vextir Seðla­bank­ans, þ.e. eru vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, eru þannig áfram 5,5 pró­sent.

Grein­ing­ar­deildir Íslands­banka, Lands­bank­ans og Arion banka spáðu allar óbreyttum stýri­vöxt­um, en við síð­ustu vaxta­á­kvörðun voru þeir hækk­aðir um 0,5 pró­sent­ur. Í spám grein­ing­ar­að­ila fyrir vaxta­á­kvörðun í dag var meðal ann­ars bent á að verð­bólga í sept­em­ber var lægri en reiknað var með, en verð­bólga mæld­ist þá 1,9 pró­sent.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefnd­ar, sem lesa má í heild hér að neð­an, segir meðal ann­ars að verð­bólga sé enn undir mark­miði Seðla­bank­ans og hefur hún auk­ist hægar en gert var ráð fyrir í síð­ustu spá bank­ans. Verð­bólgu­horfur til lengri tíma hafa þó ekki breyst umtals­vert, þótt nær­horfur séu betri. „Auk­ist verð­bólga í fram­haldi af kjara­samn­ingum svipað og spár benda til mun pen­inga­stefnu­nefndin þurfa að hækka vexti frekar eigi verð­bólgu­mark­miðið að nást til lengri tíma lit­ið. Hve mikið og hve hratt ræðst af fram­vind­unni og því hvernig greið­ist úr þeirri óvissu sem nú er til stað­ar,“ segir nefnd­in.

Auglýsing

Þá er til­kynnt um að bindi­skylda auk­ist úr tveimur pró­sentum í fjögur pró­sent frá og með 21. októ­ber næst­kom­andi. „Er það gert til þess að auð­velda Seðla­bank­anum stýr­ingu á lausu fé í umferð í fram­haldi af miklum gjald­eyr­is­kaupum bank­ans að und­an­förnu og í tengslum við upp­gjör slita­búa gömlu bank­anna og útboð sem áformað er í því skyni að leysa út eða binda svo­kall­aðar aflandskrón­ur. Nýjar reglur um bindi­skyldu verða sendar í dag til birt­ingar í Stjórn­ar­tíð­ind­um.“

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri og for­maður pen­inga­stefnu­nefnd­ar, mun rök­styðja frekar ákvörðun nefnd­ar­innar á upp­lýs­inga­fundi sem hefst klukkan tíu. Greint verður frá efni fund­ar­ins á Kjarn­an­um.

Yfir­lýs­ing Pen­inga­stefnu­nefndar í heild:



Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bank­ans óbreytt­um. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því áfram 5,5.



Á fyrri hluta árs­ins var vöxtur inn­lendrar eft­ir­spurnar áþekkur því sem gert var ráð fyrir í síð­ustu spá Seðla­bank­ans, en hag­vöxtur mælist tölu­vert meiri. Þótt spá­skekkjan stafi lík­lega af tíma­bundnum þáttum er áfram útlit fyrir öfl­ugan hag­vöxt og vax­andi fram­leiðslu­spennu á næstu miss­er­um.



Verð­bólga er enn undir mark­miði Seðla­bank­ans, sér­stak­lega ef horft er fram­hjá hús­næð­islið vísi­tölu neyslu­verðs, og hefur auk­ist hægar en gert var ráð fyrir í síð­ustu spá bank­ans. Stafar það að nokkru leyti af hærra gengi krónu en sveiflu­kenndir liðir eiga þar einnig hlut að máli. Verð­bólgu­horfur til lengri tíma litið hafa því ekki breyst umtals­vert þótt nær­horfur séu betri. Nið­ur­staða kjara­samn­inga og til­tölu­lega háar verð­bólgu­vænt­ingar benda eftir sem áður til þess að verð­bólga muni aukast á næstu miss­er­um. Á móti kemur lækkun alþjóð­legs vöru­verðs og tæp­lega 4% hækkun á gengi krón­unnar frá síð­ustu vaxta­á­kvörðun þrátt fyrir mikil gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans.



Auk­ist verð­bólga í fram­haldi af kjara­samn­ingum svipað og spár benda til mun pen­inga­stefnu­nefndin þurfa að hækka vexti frekar eigi verð­bólgu­mark­miðið að nást til lengri tíma lit­ið. Hve mikið og hve hratt ræðst af fram­vind­unni og því hvernig greið­ist úr þeirri óvissu sem nú er til stað­ar. Sterk­ari króna og alþjóð­leg verð­lags­þróun hefur gefið svig­rúm til að hækka vexti aðeins hægar en áður var talið nauð­syn­legt en breytir ekki þörf fyrir aukið aðhald á næstu miss­er­um. Vaxta­fer­ill­inn mun einnig ráð­ast af því hvort öðrum stjórn­tækjum verður beitt til þess að halda aftur af eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingi á kom­andi miss­er­um. Að teknu til­liti til hag­sveiflu felur vænt afkoma rík­is­sjóðs í ár og frum­varp til fjár­laga 2016 hins vegar í sér slökun á aðhaldi í rík­is­fjár­málum sem að óbreyttu kallar á meira pen­inga­legt aðhald en ella.



Pen­inga­stefnu­nefnd hefur ákveðið að auka bindi­skyldu úr 2% í 4% frá og með næsta bindi­skyldu­tíma­bili sem hefst 21. októ­ber nk. Er það gert til þess að auð­velda Seðla­bank­anum stýr­ingu á lausu fé í umferð í fram­haldi af miklum gjald­eyr­is­kaupum bank­ans að und­an­förnu og í tengslum við upp­gjör slita­búa gömlu bank­anna og útboð sem áformað er í því skyni að leysa út eða binda svo­kall­aðar aflandskrón­ur. Nýjar reglur um bindi­skyldu verða sendar í dag til birt­ingar í Stjórn­ar­tíð­ind­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None