Svavar Halldórsson nýr framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda

svavar-halldorsson.jpg
Auglýsing

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun Svavar Hall­dórs­son, fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV og Stöð 2, taka við stöðu fram­kvæmda­stjóra hjá Lands­sam­tökum sauð­fjár­bænda á morg­un.

Þór­ar­inn Ingi Pét­urs­son, for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda, segir í sam­tali við Kjarn­ann, að stjórn sam­tak­anna hafi ákveðið að setja sig í sam­band við Svavar til að bjóða honum fram­kvæmda­stjóra­stöð­una fljót­lega eftir að Sig­urður Eyþórs­son lét af störfum sem fram­kvæmda­stjóri þeirra þann 1. apríl síð­ast­lið­inn, og samn­inga­við­ræður hafi gengið vel.

„Þetta er bara maður sem hefur áhuga á íslenskum mat og hefur til að mynda skrifað bækur og fram­leitt sjón­varps­þætti um áhuga­mál sitt. Ég hafði nú bara hitt hann einu sinni áður en við ákváðum að hafa sam­band við hann, en mér fannst hann hafa spenn­andi hug­myndir þannig að ég ákvað bara að slá á þráð­inn til hans og kanna hvort kall væri til,“ segir for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda í sam­tali við Kjarn­ann, aðspurður um ákvörðun sam­tak­anna að fal­ast eftir starfs­kröftum Svav­ars Hall­dórs­son­ar.

Auglýsing

Vilja mark­aðs­setja lamba­kjötið enn frekar



Þór­ar­inn Ing­i ­segir stjórn sam­tak­anna hafa miklar vænt­ingar til sam­starfs­ins við frétta­mann­inn fyrr­ver­andi. „Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að við erum stans­laust að velta fyrir okkur hvernig við getum mark­aðs­sett lamba­kjötið betur fyrir neyt­and­an­um, og telj­u­m Svavar vera mjög efni­legan mann til þess að auka hróður lamba­kjöts­ins enn frek­ar.“

Frá því að Svavar lét af störfum sem frétta­maður hjá RÚV í mars­mán­uði árið 2013, hefur hann rekið fyr­ir­tækið sitt Íslenskur matur og mat­ar­menn­ing. Fyr­ir­tækið fram­leiðir sjón­varps­þætti og annað fjöl­miðla­efni, sinnir almanna­tengslum og ráð­gjöf, auk þess að reka heil­sölu og net­versl­un.  

Svavar hefur átt sæti í stjórnum Félags Frétta­manna á RÚV sem og Blaða­manna­fé­lags Íslands og var um tíma flokks­bundin sjálf­stæð­is­mað­ur. Þá gegndi hann stöðu for­manns hjá Stefni - félagi ungra sjálf­stæð­is­manna í Hafn­ar­firði á sínum yngri árum. „Har­aldur Bene­dikts­son er nú sjálf­stæð­is­maður lík­a,“ segir Þór­ar­inn og hlær. „Menn þurfa ekk­ert endi­lega að vera fram­sókn­ar­menn til að vinna fyrir sauð­fjár­bænd­ur. Ég er ekk­ert að spá í neina póli­tík í þessu, enda á hún ekki að skipta máli í þessu verk­efn­i,“ segir for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda í sam­tali við Kjarn­ann.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None