Sveik 161 milljón króna út úr vogunarsjóði í gegnum síma

PeningarVef.jpg
Auglýsing

Óprútt­inn aðili milli­færði 1.2 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða rúma 161 milljón íslenskra króna, af banka­reikn­ingum vog­un­ar­sjóðs­ins For­telus Mana­gement LLP, eftir að hann náði að plata fjár­mála­stjóra sjóðs­ins til að gefa sér upp örygg­is­kóða í gegnum síma. Frétta­mið­ill­inn Bloomberg greinir frá mál­inu.

Þjóf­ur­inn hringdi seint á föstu­dags­síð­degi í vog­un­ar­sjóð­inn, eða rétt fyrir lokun skrif­stof­unn­ar, og kvaðst vera starfs­maður bank­ans Coutts, sem er við­skipta­banki sjóðs­ins. Hann full­yrti við fjár­mála­stjór­ann að grunn­sam­legar milli­færslur hefðu átt sér stað á reikn­ingum sjóðs­ins, og hann þyrfti örygg­is­kóða þeirra til að aft­ur­kalla milli­færsl­urn­ar.

Fjár­mála­stjór­inn not­aði ein­hvers konar auð­kenniskort til að kalla fram örygg­is­kóða sem hann lét svo síma­þjófinn hafa í góðri trú. Þegar hann mætti svo til vinnu á mánu­dags­morgun sá hann sér til mik­illar skelf­ingar hvar hátt í 200 millj­ónir króna höfðu horfið af reikn­ingum vog­un­ar­sjóðs­ins. Þá var áður­nefnt síma­tal hvergi skrá­sett hjá Coutts bank­an­um. Fjár­mála­stjór­inn hafði verið gabb­að­ur.

Auglýsing

Hann var síðar rek­inn frá vog­un­ar­sjóðnum sem hefur stefnt honum fyrir afglöp í starfi. Fjár­mála­stjór­inn neitar ásök­unum um van­ræsklu og ítrekar að hann hafi veitt áður­nefndar upp­lýs­ingar í góðri trú og ekki í glæp­sam­legum til­gangi.

Atvikið þykir sýna að jafn­vel háþró­uð­ustu örygg­is­kerfi koma ekki í veg fyrir mann­leg mis­tök og að fyr­ir­tæki leggi ef til vill of mikla áherslu á að vera sem best tækjum búin frekar en að ein­beita sér að því að þjálfa starfs­menn sína til að bregð­ast við til­raunum glæpa­manna.

Þá er víst alvana­legt að glæpa­menn nýti sér föstu­daga til að hringja í fjár­mála­fyr­ir­tæki eða lög­manns­skrif­stofur og reyni að villa á sér heim­ildir sem banka­starfs­menn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None