Svíþjóðardemókratar vilja vantraust á Löfven

loven.jpg
Auglýsing

Mattias Karls­son, leið­togi Sví­þjóð­ar­kemókrata á sænska þing­inu, óskaði eftir því þegar leið­toga­kapp­ræður fóru fram í dag, að fá að leggja fram van­traust­s­til­lögu gegn Stefan Löf­ven for­sæt­is­ráð­herra. Aðeins tvær vikur eru síðan Löf­ven aflýsti fyr­ir­hug­uðum kosn­ingum á miðju kjör­tíma­bili eftir upp­nám við afgreiðslu fjár­laga í des­em­ber.

Til að geta lagt fram van­traust­s­til­lögu gegn ráð­herra í Sví­þjóð þarf þing­maður að fá 35 stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn til að standa með sér. Ekki mega líða meira en 3 þing­fundir frá því að beiðni um van­traust hefur verið lögð fram. Ein­faldan meiri­hluta þing­heims (175 jákvæð atkvæði) þarf til að stað­festa van­traust­s­til­lög­una.

„Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir nota hræðsu­að­ferðir við með­ferð fjár­laga og halda því áfram. Á sama tíma er flokk­ur­inn að brenna margar brýr að baki sér,“ segir Hen­rik Oscars­son, stjórn­mála­fræð­ingur við Gauta­borg­ar­há­skóla, við AFP-frétta­stof­una.

Auglýsing

Ólík­legt þykir að van­traust­s­til­lagan verði stað­fest í þing­inu þegar greidd verða um hana atkvæði. Sví­þjóða­demókrat­arnir hafa 49 þing­menn eftir að hafa tvö­faldað fylgi sitt í síð­ustu kosn­ingum og þurfa því 126 atvæði til við­bótar frá öðrum öflum í sænska þing­inu.

Löfven hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann tók við embætti forsætisráðherra af Fredrik Reinfeldt í október. Löf­ven hefur ekki átt sjö dag­ana sæla síðan hann tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra af Fred­rik Rein­feldt í októ­ber.

Náði naum­lega að afstýra kosn­ingum



Löf­ven hafði boðað til kosn­inga fyrr í des­em­ber­mán­uði í kjöl­far þess að minni­hluta­stjórn undir hans for­sæti mistókst að koma fyrsta fjár­laga­frum­varpi sínu í gegnum þing­ið, en hún tók við völdum í kjöl­far þing­kosn­inga sem fóru fram í sept­em­ber síð­ast­liðn­um.

Skoð­anna­kann­anir bentu til þess að Sví­þjóð­ar­demókrat­ar, flokkur þjóð­ern­is­sinna sem vill herða mjög inn­flytj­enda­lög­gjöf lands­ins, myndi styrkja sig mjög ef kosið yrði aftur í mars. Flokk­ur­inn vann stór­sigur í síð­ustu kosn­ingum þegar hann fékk 12,9 pró­sent atkvæða, sem er það mesta sem hann hefur nokkru sinni hlot­ið. Aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar eins og til dæmis Hægri­flokk­ur­inn (Modera­terna) hafa einnig mælst með aukið fylgi síðan í kosn­ing­unum síð­asta sum­ar.

Löf­ven náði á síð­ustu stundu að gera samn­ing við mið­hægri­flokka og afstýra falli minni­hluta­stjórn­ar­innar í lok des­em­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None