Svona er hægt að lækka tryggingakostnaðinn

Andrea1.jpg
Auglýsing

Aðal­steinn Leifs­son, sér­fræð­ingur í samn­inga­tækni, og Andrea ofur­neyt­andi fóru yfir trygg­inga­mál Andreu í fjórða þætti Ferðar til fjár. Andrea vildi athuga hvort hún gæti lækkað kostn­að­inn við trygg­ingar heim­il­is­ins en áður en Andrea hélt í það ferða­lag, þá ráð­lagi Aðal­steinn henni að fara vel yfir þær trygg­ingar sem hún vill hafa. „Það er ágætt að fá ráð­legg­ingar frá trygg­inga­fé­lag­inu, en líka að taka eig­in, upp­lýsta ákvörðun um þína trygg­inga­vernd.“

Aðal­steinn sagði flesta þá sem leita betri kjara ein­fald­lega halda á fund í sínu trygg­ing­ar­fé­lagi og biðja vin­sam­lega um betri kjör. „Það er ágætt og gott að fá betri kjör. En vanda­málið er að það getur verið erfitt að sjá hvaða kjör eru ásætt­an­leg og hver ekki. Það er erfitt að meta hvort til­boðið sé gott eða slæmt,“ sagði Aðal­steinn. Til þess að fá sam­an­burð og bæta samn­inga­stöð­una sé því best að fá til­boð frá öðru trygg­ing­ar­fé­lagi sam­tím­is.

Auglýsing

Ekki skipta strax

Andrea ræddi við tvö trygg­ing­ar­fé­lög og fékk til­boð frá báð­um. Annað félag­anna var það sem hún var fyrir með sín við­skipti. Hitt félagið sem hún tal­aði við bauð henni þó betri kjör.



Aðal­steinn lagði áherslu á að stökkva ekki til og skipta um félag. „Sem ein­stak­lingur í samn­inga­við­ræðum við stórt trygg­ing­ar­fé­lag þá spáir þú í hlutum sem eru ann­ars eðlis en ein­ungis bestu kjör­in. Til dæmis ástæður þess af hverju þú valdir hitt félagið í upp­hafi. Það er líka ákveðið vesen og umstang að skipta um trygg­ing­ar­fé­lag.“



Hann ráð­lagði Andreu að skoða lægra til­boðið og velta fyrir sér þessum óefn­is­legu þátt­um, það er hversu mikið lægra nýja trygg­ing­ar­fé­lagið þurfi að bjóða svo það borgi sig að færa við­skipt­in. „En þú sérð að það er tölu­verður munur á að ganga inn í þitt trygg­ing­ar­fé­lag án þess að vera með til­boð í hend­inni, og ganga inn vit­andi að þú ert með hag­stæð­ara til­boð ann­ars staðar frá.“



Vopnuð lægra til­boð­inu hélt Andrea á fund við sitt gamla trygg­ing­ar­fé­lag. Þar voru henni boðin enn betri kjör en hitt félagið hafði boðið og hélt hún sér því í við­skiptum á sama stað og áður. Samn­inga­við­ræð­urnar voru sann­ar­lega ferð til fjár!



Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 12. febr­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None