Taylor Swift snýr ákvörðun Apple: Tónlistarmenn fá borgað

000-458100034.jpg
Auglýsing

Opin­bert bréf banda­rísku söng­kon­unnar Taylor Swift til stjórn­enda Apple hafði þau áhrif að fyrri ákvörðun þeirra, um að greiða ekki laga­höf­undum höf­und­ar­rétt­ar­laun á fyrstu starfs­mán­uðum nýrrar tón­list­ar­veitu fyr­ir­tæk­is­ins, var snúið við. Apple hugð­ist ekki greiða tón­list­ar­mönnum höf­und­ar­rétt­ar­laun fyrstu þrjá mán­uði eftir opnun Apple Music, nýrrar tón­list­ar­veita fyr­ir­tæk­is­ins, en þá verður hægt að skrá sig án end­ur­gjalds. Að þremur mán­uðum liðnum munu not­endur þurfa að greiða tíu doll­ara á mán­uði.

Pist­ill Taylor Swift vakti mikla athygli um helg­ina en hann birt­ist á Tumblr síðu tón­list­ar­kon­unnar og hét „Til App­le, ást­ar­kveðjur Taylor“. Þar sagð­ist Swift, sem er ein allra vin­sælasta popp­stjarna heims um þessar mund­ir, ekki streyma nýj­ustu breið­skíf­unni sinni 1989 í gegnum tón­list­ar­veit­una vegna ákvörð­unar Apple um að greiða tón­list­ar­mönnum ekki höf­und­ar­rétt­ar­laun fyrstu þrjá mán­uð­ina. Hún sagði ákvörð­un­ina ekki snú­ast um sig heldur nýja lista­menn. „Með fullri virð­ingu, það er ekki of seint fyrir Apple að breyta um stefnu og fá fólk innan tón­list­ar­geirans til þess að skipta um skoð­un, þá sem munu finna mest fyrir ákvörðun ykk­ar. Við biðjum ykkur ekki um ókeypis iPhone síma. Vin­sam­leg­ast ekki biðja okkur um að skaffa ykkur tón­list án end­ur­gjalds,“ skrif­aði Swift. Eddy Cue, einn æðsti yfir­maður App­le, brást við á Twitter og sagð­ist með­taka skila­boð­in.



Apple Music, ný tón­list­ar­veita í sam­keppni við Spotify og fleiri, fer í loftið þann 30. júní næst­kom­andi. Í boði verða um 30 milljón lög. Mán­að­ar­gjald verður tíu doll­arar á mán­uði eða 15 doll­arar fyrir fjöl­skyldu, að loknu ókeypis þriggja mán­aða prufu­tíma­bili.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None