Það borgar sig að kaupa Lionel Messi þótt verðið sé 43 milljarðar króna

h_51833716-1.jpg
Auglýsing

Þrjú evr­ópsk knatt­spyrnu­fé­lög hafa látið fram­kvæmt grein­ingu á því hvort það borgi sig að kaupa argentíska knatt­spyrnustórstirnið Lionel Messi frá Barcelona, en hann er með ákvæði í samn­ingi sínum sem gerir liðum kleift að kaupa hann á 205 millj­ónir punda, rúm­lega 43 millj­arða króna. Manchester Even­ing News greinir frá þessu, en eitt lið­anna þriggja er talið vera hið mold­ríka Manchester City.

Dýrasti knattspyrnumaður allra tíma er Walesverjinn Gareth Bale, sem var keyptur til Real Madrid fyrir 85 milljónir punda, tæpa 17 milljarða króna. Dýr­asti knatt­spyrnu­maður allra tíma er Wales­verj­inn Gar­eth Bale, sem var keyptur til Real Madrid fyrir 85 millj­ónir punda, tæpa 18 millj­arða króna.

Í dag er dýr­asti knatt­spyrnu­maður heims Wales­verj­inn Gar­eth Bale, en Real Madrid greiddi 85 millj­ónir punda, 17,9 millj­arða króna, fyrir hann. Það er aðeins meira en þau 80 milljón pund, 16,8 millj­arðar króna, sem sama lið greiddi fyrir snill­ing­inn Christ­i­ano Ron­aldo.

Auglýsing

Myndi skila 63 millj­örðum króna í kass­ann



Í frétt Business Insider um málið segir að íþrótta­mark­aðs­fyr­ir­tækið Euromer­icas hafi látið gera grein­ingu á því hvort það myndi borga sig fyrir lið í ensku úrvals­deild­inni að borga 205 millj­ónir punda fyrir Messi. Sam­kvæmt nið­ur­stöðu grein­ing­ar­innar er virði Messi hærra en sem nemur kaup­verð­inu. Euromer­icas telur að hann geti náð að skapa um 300 millj­ónir punda, um 63 millj­arða króna, í tekjur fyrir nýja eig­end­ur. Í skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins segir að þessi tala sé summa mark­aðsvirðis Messi, áhrif á mark­aðs­setn­ingu og fjöl­miðla­á­hrif í gegnum þær aug­lýs­ingar sem hann birt­ist í, en Messi aug­lýsir þegar vörur stór­fyr­ir­tækja á borð við Adi­das, Pepsí, Dolce&Gabana og Lay´s.

Nið­ur­staðan er því sú að þessi 27 ára knatt­spyrnu­snill­ing­ur, sem mun lík­lega slá flest met sem hægt er að slá í

Það myndi borgar sig að kaupa Lionel Messi. Það myndi borgar sig að kaupa Lionel Messi.

alþjóða­knatt­spyrnu áður en hann leggur skónna á hill­una, sé mark­aðs­legur happa­feng­ur. Kaupi félag Messi mun það þýða að það selur fleiri bún­inga, fleiri mæta á leiki, áhugi á lið­inu í öðrum löndum eykst og spenna fyrir því á ferða­lögum erlendis eykst til muna.

Til að setja mik­il­vægi þessa í sam­hengi má rifja upp að þegar Real Madrid keypti David Beck­ham á sínum tíma þá greiddi liðið 25 millj­ónir punda fyr­ir. Í kjöl­farið seldi liðið eina milljón Beck­ham-­bún­inga á um 50 pund stykk­ið. Bara treyju­salan skil­aði því tvö­falt fleiri pundum í kass­ann en Real Madrid greiddi fyrir leik­mann­inn.

Ekki margir sem myndu hafa efni á Messi



Það sem skiptir mestu máli af öllu er hins vegar sú nið­ur­staða grein­ing­ar­innar að Messi mun fjölga sjón­varps­á­horf­endum sem horfa á þá deild sem hann spilar í. Stærsti hluti tekna liða í ensku úrvalds­deild­inni kemur í kass­ann vegna risa­stórra sjón­varps­rétt­ar­samn­inga. Sam­kvæmt grein­ing­unni mun virði þeirra aukast enn frekar með til­komu stór­stjörnu á borð við Messi í deild­ina.

Það eru auð­vitað ekki mörg lið í ensku deild­inni sem hafa efni á leik­manni eins og Messi. Lík­lega eru þau ein­ungis tvö, Manchester City og Chel­sea. Þrátt fyrir að eig­endur beggja eigi sann­ar­lega fyrir verð­mið­anum þarf að taka til­lit til reglna FIFA um fjár­hags­lega hátt­vísi (e. FIFA Fin­ancial Fair Play) sem eiga að jafna stöðu þeirra liða sem minna eiga gegn þeim sem eru í eigu ein­stak­linga með ótæm­andi vasa. Bæði lið hafa hins vegar sýnt ótrú­lega leikni við að kom­ast fram hjá þessum reglum og myndu lík­ast til geta gert það ef til boða stæði að kaupa sjálfan Lionel Messi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None