landsbankinn.jpg
Auglýsing

Nú standa öll spjót á stjórn­endum Lands­bank­ans vegna fyr­ir­ætl­anna rík­is­bank­ans um að reisa sér nýjar 14.500 fer­metra höf­uð­stöðvar við Aust­ur­höfn í Reykja­vík, við hlið Hörpu, fyrir litla átta millj­arða króna.

Áformin hafa verið harð­lega gagn­rýnd og þá helst á meðal stjórn­ar­liða á Alþingi, en ­Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, Elín Hir­st, Vig­dís Hauks­dótt­ir og Frosti Sig­ur­jóns­son eru á meðal þeirra þing­manna sem hafa lýst yfir van­þóknun sinni á nýjum höf­uð­stöðvum rík­is­bank­ans. Þá hefur bæj­ar­ráð Vest­manna­eyja­bæjar óskað eftir því að hlut­hafa­fundur verði kall­aður saman hjá Lands­bank­anum til að fara yfir málið og bæj­ar­stjór­inn í Kópa­vogi vill fá höf­uð­stöðvar rík­is­bank­ans þang­að.

Nú hefur Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra bæst í hóp­inn, en hann gerði ýmsar athuga­semdir við fyr­ir­ætl­anir Lands­bank­ans í fréttum RÚV í gær­kvöldi. Í fyrsta lagi finnst honum gert ráð fyrir allt of miklu bygg­inga­magni milli Hörpu og gamla bæj­ar­ins, og þá gagn­rýndi hann for­gangs­röðun rík­is­bank­ans sem ætti fyrst og síð­ast að ein­beita sér að því að bæta kjör við­skipta­vina sinna.

Auglýsing

Svo sagði for­sæt­is­ráð­herra á RÚV: „Og í þriðja lagi þá finnst mér það und­ar­legt ef banki sem er í almanna­eigu, ætlar að fara gegn því sem virð­ist vera aug­ljós vilji eig­end­anna - almenn­ings og full­trúa hans.“

Ummæli Sig­mundar Dav­íðs koma ekki á óvart, enda hefur rík­is­bank­inn verið hálf­gerður stuð­púði fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í gegnum tíð­ina, en sumt af því sem for­sæt­is­ráð­herra segir stenst ekki alveg skoð­un.

Í fyrsta lagi hefur for­sæt­is­ráð­herra eða rík­is­stjórnin ekk­ert að gera með skipu­lags­mál í höf­uð­borg­inni, þau mál eru á for­ræði Reykja­vík­ur­borg­ar, þó sum­ir ­geti bara alls ekki sætt sig við það. Í öðru lagi er fal­legt að sjá hvað Sig­mundi Davíð er umhugað um að vilji almenn­ings nái fram að ganga í mál­inu. Við­horf almenn­ings til fyr­ir­hug­aðra höf­uð­stöðva Lands­bank­ans hefur reyndar ekki verið mældur form­lega, en for­sæt­is­ráð­herra er greini­lega í góðum tengslum við almanna­vilj­ann.

Það væri ósk­andi ef hann og aðrir í rík­is­stjórn­inni myndu hlusta oftar á vilja almenn­ings. Sér­stak­lega þegar hann hefur verið mældur með vís­inda­legum hætti, eins og til dæmis í Evr­ópu­sam­bands­mál­inu þar sem meiri­hluti þjóð­ar­innar vildi að aðild­ar­við­ræð­urnar við sam­bandið verði kláraðar sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­um.

En vilji er víst ekki það sama og vilji. Tja, nema stundum auð­vit­að.

Pæl­ing dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarn­ans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum frétt­um. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Frétta­póstur Kjarn­ans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None