Þarf 500 fleiri íbúðir en áður var talið

Byggja þarf enn fleiri íbúðir hér á landi en áður var talið til að slá á óuppfylltri íbúðaþörf þar sem fólksfjölgun var umfram spár í fyrra, samkvæmt uppfærðri spá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Reykjavík
Auglýsing

Óupp­fyllt íbúða­þörf hér á landi nemur 4.450 íbúð­um, miðað við upp­færða íbúða­þarfa­grein­ingu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS). Byggja þarf 500 fleiri íbúðir en áður var talið til að slá á þörf­ina, þar sem íbúum fjölg­aði meira en búist var við í fyrra.

Í grein­ing­unni, sem byggir á mann­fjölda­spá Hag­stofu, segir að hér þurfi að byggja 27 þús­und nýjar íbúðir fram til árs­ins 2030 til vinna á óupp­fylltri íbúða­þörf og halda í við fólks­fjölg­un, en það jafn­gildir tæp­lega þrjú þús­und íbúðum á hverju ári.

Sú lang­tíma­spá helst óbreytt, þrátt fyrir að núver­andi íbúða­þörf hafi aukist, þar sem fleiri íbúðir komu á markað í fyrra en gert var ráð fyrir og sömu­leiðis sé útlit fyrir að fleiri íbúðir komi á næstu tveimur árum en upp­haf­lega var talið. Það muni því takast að vinna meira á óupp­fylltu íbúða­þörf­inni í ár og á næsta ári en fyrri spá gerði ráð fyr­ir.

Auglýsing

Karlotta Hall­dórs­dótt­ir, hag­fræð­ingur í hag­deild HMS, segir að umræðan um lóða­skort hafi risið reglu­lega og er sögð standa í vegi fyrir íbúða­upp­bygg­ingu. Hún bætir við að upp­færða grein­ing stofn­un­ar­innar ætti að vera sveit­ar­fé­lögum hvatn­ing til að vera með til­búnar lóðir til úthlut­un­ar.

Ásgeir Jóns­son, seðla­banka­stjóri, sagði á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi í síð­ustu viku að mikil hækkun fast­eigna­verðs sem hefur átt sér stað væri að ein­hverju leyti und­ir­byggð á skipu­lags­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sam­kvæmt honum væri ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar að hafa ekki brotið nýtt land fyrir nýjar íbúða­byggðir á síð­ari árum þar stór þátt­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent