Þórunn Sveinbjarnardóttir líklega næsti formaður BHM

Thorunn-Sveinbjarnardottir-net150820131.jpg
Auglýsing

Þór­unn Svein­bjarn­ar­dóttir verður lík­lega næsti for­maður Banda­lags háskóla­manna (BHM). Upp­still­ing­ar­nefnd til stjórn­ar­kjörs hjá BHM hefur lagt þetta fyrir aðal­fund banda­lags­ins, sem verður hald­inn þann 22. apríl næst­kom­andi. Lagt er til að Páll Hall­dórs­son, núver­andi for­mað­ur, verði vara­for­mað­ur. Þetta stað­festir Stefán Aðal­steins­son fram­kvæmda­stjóri BHM við Kjarn­ann.

Þór­unn er fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og fyrr­ver­andi þing­maður og umhverf­is­ráð­herra fyrir flokk­inn. Hún var ein þriggja sem sótt­ust eftir því að verða for­maður BHM, en banda­lagið aug­lýsti eftir nýjum for­manni á vef­síðu sinni í lok febr­ú­ar. Þetta hefur aldrei verið gert áður, en helg­ast af þeim óvenju­legu aðstæðum að for­maður hætti á miðju kjör­tíma­bili. Það var Guð­laug Krist­jáns­dóttir sem hætti í des­em­ber, vegna mik­illa anna í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarð­ar. Guð­laug var kjörin for­maður á aðal­fundi félags­ins í maí 2008 og hafði því verið for­maður í sex og hálft ár þegar hún hætti störf­um. Þá tók Páll Hall­dórs­son við, en hann hafði verið vara­for­maður félags­ins. Hann sótt­ist ekki eftir því að verða for­maður áfram heldur hyggst taka við vara­for­manns­emb­ætt­inu á ný.

Sem fyrr segir er aðal­fundur BHM 22. apríl næst­kom­andi. Þótt upp­still­ing­ar­nefnd hafi lagt til að Þór­unn verði for­maður geta aðrir boðið sig fram á fund­inum með stuðn­ingi síns stétt­ar­fé­lags.

Auglýsing

Banda­lag háskóla­manna stendur í ströngu þessa dag­ana, verk­föll fyrstu félags­manna í BHM hófust í morgun og fleiri verk­föll eru yfir­vof­andi. Félags­dómur hafn­aði í gær kröfu rík­is­ins um að verk­föll fimm stétt­ar­fé­lög hafi verið ólög­lega boð­uð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None