Þróunarsamvinnustofnun og allt starfsfólk hennar gagnrýnir fyrirætlanir utanríkisráðherra

IMG_4699.jpg
Auglýsing

Allir íslenskir starfs­menn Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar Íslands, fyrir utan fram­kvæmda­stjór­ann Eng­il­bert Guð­munds­son, mót­mæla fyr­ir­ætl­unum Gunn­ars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra um að leggja stofn­un­ina niður og færa starf­semi hennar inn í ráðu­neyt­ið. Þetta kemur fram í umsögn starfs­fólks­ins um frum­varp Gunn­ars Braga sem var send utan­rík­is­mála­nefnd Al­þingis í dag.

Eng­il­bert skrifar svo aðra umsögn fyrir hönd stofn­un­ar­innar sjálfrar, þar sem fram kemur að stofn­unin telji „enn sem fyrr lík­legra að til­vera fag­stofn­unar sé ákjós­an­leg­asti skipu­lags­kost­ur­inn til að stuðla að slíkri upp­bygg­ingu á fag­legri get­u.“ Þetta sé ekki síst í ljósi þess að stjórn­völd hafa talað um aukin fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu á næstu árum, og því verði mikil þörf á því að auka umfang og dýpt fag­þekk­ingar í þró­un­ar­sam­vinnu.

Þá seg­ist Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun harma það að ekki skuli hafa tek­ist að ná fag­legri og póli­tískri sam­sötðu allra þeirra sem beri hag fátæks fólks í sam­starfs­löndum Íslands fyrir brjósti. Þá segir að í skýrslu sem meðal ann­ars hefur verið lögð til grund­vallar ákvörðun um að leggja niður stofn­un­ina sé að finna vill­andi stað­hæf­ingar sem sýni djúp­stæðan mis­skiln­ing á því hvað fram­kvæmd feli í sér í nútíma þró­un­ar­sam­vinnu.

Auglýsing

Stað­hæf­ing­arnar feli í sér að stofn­unin vinni ekki í fram­kvæmd þró­un­ar­sam­vinnu heldur fyrst og fremst í eft­ir­liti. „Skýrslan leggur nokkuð að jöfnu gæða­eft­ir­lit utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins með alþjóða­stofn­unum sem Ísland styður og gæða­eft­ir­lit ÞSSÍ með fram­gangi til­tek­inna verk­efna, en það virð­ist svipað og að leggja að jöfnu eft­ir­lit eig­enda með afkomu fyr­ir­tækis og eft­ir­lit tækni­deildar með gæðum fram­leiðsl­unn­ar. Hvorttveggja er nauð­syn­legt en mjög ólíkt. Þarna er á ferð mis­skiln­ingur sem vænt­an­lega hefði mátt útrýma með betri umfjöllun á fyrri stigum og þannig tryggja að ráð­herra fengi sem bestan grunn til ákvarð­ana­töku.“

Í bréfi starfs­fólks­ins kemur fram að það taki undir athuga­semdir og and­mæli sem komið hafi fram í umsögnum Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar sjálfr­ar. „Und­ir­rituð telja þvert á móti að æski­legt væri að færa fleiri verk­efni á sviði þró­un­ar­sam­vinnu yfir til ÞSSÍ og efla mála­flokk­inn á þann hátt, enda eru fyrir því fjöl­mörg rök. Við leggjum því ein­dregið til að Alþingi standi við fyr­ir­heit um aukin fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu og styðji þá stofnun sem býr yfir mestum fag­legum styrk á því sviði á Ísland­i.“

Gunnar Bragi hefur lagt fram á nýjan leik frum­varp sitt sem miðar að því að leggja niður stofn­un­ina og flytja starf­semi henn­ar inn í ráðu­neyt­ið. Gefið hefur verið út að allir starfs­menn fái áfram vinnu inni í ráðu­neyt­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None